Fótbolti

Lewandowski í heimsmetabók Guinness

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Lewandowski með viðurkenningarskjölin frá heimsmetabókinni.
Lewandowski með viðurkenningarskjölin frá heimsmetabókinni. vísir/getty
Heimsmetabók Guinness verðlaunaði hinn pólska framherja Bayern München, Robert Lewandowski, í gær en hann setti fjögur heimsmet fyrr á árinu.

Hann kom þá inn af bekknum í hálfleik í leik gegn Wolfsburg í september. Bayern var þá að tapa leiknum.

Eins og margir eflaust muna þá skoraði Lewandowski fimm mörk á aðeins níu mínútna kafla. Það var ígildi fjögurra heimsmeta.

Fljótasta þrennan, fljótasta fernan, fljótasta fimman og flest mörk varamanns frá upphafi í þýsku deildinni.

Fínasti endir á árinu hjá honum að fá fjögur viðurkenningarskjöl frá heimsmetabókinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×