Fótbolti

Lewandowski áfram hjá Dortmund | Fær góða launahækkun

Stefán Árni Pálsson skrifar
Robert Lewandowski
Robert Lewandowski Mynd / Getty Images
Framherjinn sjóðheiti Robert Lewandowski hefur náð samkomulagi við forráðamenn Borussia Dortmund og mun vera áfram í herbúðum liðsins.

Leikmaðurinn var ítrekað orðaður við Þýskalandsmeistarana í Bayern Munchen undir lok síðasta tímabils í áfram í allt sumar en það verður ekkert að því að Lewandowski fari til erkifjendanna í FC Bayern.

Pólverjinn hefur gert nýjan samning við Borussia Dortmund sem færir honum drjúga launahækkun.

„Ég verð áfram hjá Dortmund, í eitt ár í það minnsta,“ sagði Lewandowski við þýska blaðið Bild.

„Allir aðilar málsins hafa náð frá sáttum og er ég gríðarlega ánægður með niðurstöðuna. Við höfum hreinsað andrúmsloftið og málinu er lokið,“ sagði leikmaðurinn er hann var á sínum tíma alls ekki sáttur að fá ekki að yfirgefa félagið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×