Bílar

Levorg með fullt hús stiga hjá NCAP

Finnur Thorlacius skrifar
Subaru Levorg.
Subaru Levorg.
Subaru Levorg hefur fengið fullt hús stiga fyrir framúrskarandi öryggi í úttekt sem NCAP (European New Car Assessment Programme) hefur gert á bílnum í margvíslegum árekstraprófum. Þannig fékk hann hæstu einkunn fyrir þá miklu vernd sem hann veitir fullorðnum farþegum (Adult Occupant Protection) og börnum (Child Occupant Protection), gangandi vegfarendum (Pedestrian Protection) og fyrir öryggiskerfi bílsins (Safety Assist) sem veita ökumanni aðstoð til að draga úr líkum á árekstri. 

NCAP hefur nú bætt við nýju prófi í athugunum sínum sem metur hversu færir bílar eru um að bregðast sjálfkrafa við aðsteðjandi hættu á ákeyrslu á gangandi vegfaranda og fékk Levorg með öryggiskerfið EyeSight mjög góða einkunn fyrir það hversu vel kerfið bregst við í slíkum tilvikum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×