Matur

Léttir sprettir - Morgunmatur og eftirréttur í sama glasi

Friðrika Hjördís Geirsdóttir skrifar

Rikka útbýr girnilegt og einfalt granóla morgunkorn og bláberjamauk sem borið er fram með grísku jógúrti og tilvalið sem morgunmatur og jafnvel sem eftirréttur.

Heimatilbúið granóla með grísku jógúrti og bláberjum

90 g haframjöl

30 g kókosmjöl

30 g pekanhnetur

30 g macadamiuhnetur

20 g ristuð og söltuð sólblómafræ

2 msk rúsínur

3/4 tsk kanill

1/4 tsk sjávarsalt

100 g hunang

1 1/2 msk ólífuolía

1 tsk heitt vatn



Hitið ofninn í 120°C. Setjið þurrefnin saman í skál og blandið saman. Blandið hunanginu saman við olíuna og vatnið og hellið saman við þurrefnin, blandið vel saman. 

Smyrjið deiginu á pappírsklædda ofnplötu og bakið í klukkustund. Hrærið í deiginu á 20 mínútna fresti. Kælið og berið fram með grísku jógúrti og bláberjamauki



Bláberjamauk

200 g fersk bláber

100 ml Acai berjasafi

6 dropar Jarðarberja Via Health stevía 

1 tsk sítrónusafi

Setjið allt saman í pott og látið malla þar í 7-10 mínútur. Kælið og berið fram með granóla og grísku jógúrti. Þetta mauk er líka tilvalið með amerískum pönnukökum.

Þessa uppskrift sem og fleiri er hægt að finna á Facebook-síðu þáttarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×