Innlent

Léttir heldur til í dag

Samúel Karl Ólason skrifar
Spáð er 10 til 18 stiga hita á landinu í dag og hlýjast á vestanverðu landinu og í innsveitum Norðurlands. Þá léttir heldur til, en þó verður þokuloft eða súld við Norður- og Austurströndina. Vindur norðaustan og austan 3-13.

Þetta kemur fram í spá Veðurstofu Íslands. Frekari upplýsingar má sjá á heimasíðu þeirra.

Svipuðu veðri er spáð á morgun eða norðaustan 5-13 og hægari á suðvesturhluta landsins. Vestan til er spáð að víða verði léttskýjað en annars verði skýjað og smáskúrir. Hiti sjö til sautján stig og hlýjast á Vesturlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×