Innlent

Léttir fyrir fjölskylduna að málinu sé lokið

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Réttargæslumaður konunnar sem var misnotuð kynferðislega af tengdasyni sínum um nokkra mánaða skeið fyrir um tveimur árum síðan segist nokkuð sátt við dómsniðurstöðuna.

Maðurinn var dæmdur í sex ára fangelsi í gær í Héraðsdómi Vesturlands. Konan sem hann misnotaði er 53 ára gömul í dag og hefur búið við þroskaskerðingu frá bernsku en hún veiktist mánaðargömul af krampaköstum.

Upp komst um málið í lok árs 2012 þegar sambýliskona mannsins kom að honum hafa mök við móður hennar. Í skýrslutöku hjá lögreglu snemma árs 2013 kom fram að konuna hafði grunað um nokkurt skeið að sambýlismaður hennar hefði misnotað móður hennar. Hún fékk það ekki staðfest fyrr en hún kom að þeim.

„Með vísan til tímabilsins sem brotin voru framin á og hversu vel maðurinn þekkti konuna þá kemur þessu dómur ekki á óvart,“ segir María Magnúsdóttir, réttargæslumaður þroskaskertu konunnar.

Vegferð fjölskyldunnar verið löng og erfið

Í dóminum kom fram að maðurinn ætti sér ekki aðrar málsbætur en þær að hann játaði sök. Ekki var talið að maðurinn ætti sér neinar málsbætur aðrar en að hann játaði sök. Hann hefði þráfaldlega brotið gegn andlega fatlaðri tengdamóður sinni sem hann hélt heimili með ásamt konu sinni. Hann hafi þannig brugðist þeirri skyldu sinni að styðja hana og vernda vegna fötlunar hennar. Þvert á móti hafi hann brotið gróflega gegn henni kynferðislega.

María segist ekki hafa heyrt hvort ákvörðun þess efnis að áfrýja dómi héraðsdóms til Hæstaréttar hafi verið tekin. „Það kæmi mér ekki á óvart að maðurinn áfrýjaði honum,“ segir hún.

„Það er léttir að þessu sé lokið eða að minnsta kosti þar til annað kemur í ljós,“ segir hún. Vegferðin hafi verið löng og erfið fyrir fjölskyldu konunnar. 

Fleiri í fjölskyldu konunnar voru grunaðir um að hafa misnotað hana. Þar á meðal stjúpfaðir hennar. Konan hafði alist upp hjá manninum á sveitabæ á Snæfellsnesi. Stjúpfaðrinn var settur í gæsluvarðhald vegna rannsóknarinnar. Ríkissaksóknari ákvað í janúar síðastliðnum að hann skyldi ekki ákærður þar sem gögn málsins þóttu ekki nægjanleg til sakfellis. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×