Körfubolti

Lestu bikarblöð KR og Þórs

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Úr deildarleik liðanna í DHL-höllinni sem KR vann 90-80.
Úr deildarleik liðanna í DHL-höllinni sem KR vann 90-80. vísir/stefán
KR og Þór Þorlákshöfn mætast í úrslitum Powerade-bikars karla í Laugardalshöllinni á laugardaginn.

Það er gríðarlega mikill munur á bikarreynslu félaganna. KR-ingar hafa alls 18 sinnum leikið til úrslita í bikarkeppninni og hafa 10 sinnum orðið bikarmeistarar, oftast allra liða. Á meðan eru Þórsarar á leið í sinn fyrsta bikarúrslitaleik frá upphafi.

Í tilefni af bikarúrslitaleiknum hafa bæði KR og Þór gefið út sérstök bikarblöð.

Þar kennir ýmissa grasa. Í KR-blaðinu má m.a. finna viðtöl við leikmenn og þjálfara KR, auk viðtals við Benedikts Guðmundssonar sem hefur þjálfað bæði KR og Þór.

Í Þórsblaðinu er svo m.a. að finna ágrip af 25 ára langri körfuboltasögu félagsins auk annars skemmtilegs efnis.

Bikarblöðin tvö má sjá og lesa hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×