Innlent

Lést stuttu eftir að hann kærði líkamsárás á Akureyri

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Árásin átti sér stað við Hjalteyrargötu á Akureyri í júlí.
Árásin átti sér stað við Hjalteyrargötu á Akureyri í júlí. vísir/pjetur
Lögreglan á Norðurlandi eystra rannsakar nú líkamsárás sem kærð var til lögreglunnar þann 12. ágúst síðastliðinn. Maðurinn sem kærði árásina lést um liðna helgi.

Meint árás átti sér stað fyrir utan hús við Hjalteyrargötu á Akureyri aðfaranótt 19. júlí. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni eru fimm grunaðir um árásina en ekki hefur tekist að yfirheyra þá alla þar sem einhverjir eru úti á sjó eða erlendis. Skýrslur hafa einnig verið teknar af vitnum.

Tveir sakborninga eru meðlimir í vélhjólaklúbbnum MC Nornir en samkvæmt umfjöllun DV um málið er klúbburinn aðeins ætlaður konum. Lögreglan telur ekki að klúbburinn tengist líkamsárásinni á neinn hátt.

Rannsókn málsins er enn í gangi en eins og fyrr segir lést maðurinn sem kærði árásina um seinustu helgi. Hann hafði fyrst leitað sér læknisaðstoðar á Selfossi þremur dögum eftir árásina og kom þá í ljós að hann var rifbeinsbrotinn.

Hvorki sú rannsókn né læknisrannsókn sem maðurinn gekkst undir nokkru síðar á Akureyri bentu til að maðurinn væri með alvarlega höfuðáverka. Krufning hefur farið fram og er beðið niðurstöðu hennar.

Þar sem rannsókn er enn í gangi er ekki ljóst hvort og þá hvernig lát mannsins mun hafa áhrif á rannsókn á málsins.

Búið var að taka skýrslu af manninum en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er þó ekki óalgengt að taka þurfi skýrslur aftur af brotaþolum þegar sakborningar og vitni hafa verið yfirheyrð. Eðli málsins samkvæmt verður það þó ekki hægt í þessari rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×