Enski boltinn

Lescott yfir til nágrannana

Anton Ingi Leifsson skrifar
Lescott himinilfandi með að vera kominn til grannana í Aston Villa.
Lescott himinilfandi með að vera kominn til grannana í Aston Villa. vísir/twitter-síða Aston Villa
Joleon Lescott er genginn í raðir Aston Villa frá West Bromwich Albion, en þetta var staðfest nú rétt í þessu. Lescott skrifar undir tveggja ára samning.

Lescott kemur, eins og fyrr segir frá WBA, en hann spilaði 35 leiki fyrir WBA á síðustu leiktíð og skoraði eitt mark.

Sjá einnig: Í beinni: Lokadagur félagaskipta á Englandi | Glugginn lokar kl. 17.00

Englendingurinn ólst uppi hjá Wolves, en hann lék einnig með Everton og Manchester City.

Villa hefur byrjað tímabilið ágætlega, en þeir eru í tólfta sætinu með fjögur stig. Lescott er ellefti leikmaðurinn sem Villa fær í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×