Lífið

Les tíst Trumps sem illmennið í nýjustu Avengers myndinni

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Josh Brolin
Josh Brolin Vísir
Leikarinn Josh Brolin var gestur Stephen Colbert í spjallþætti hans í gær. Fetaði hann í fótspor þeirra sem lesið hafa tíst Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, eins og hann væri tiltekin kvikmyndapersóna.

Mark Hamill hefur vakið mikla athygli með því að lesa tíst Trumps sem Jókerinn en í þetta sinn brá Brolin sér í hlutverk Thanos, illmennisins í nýjust Avengers-myndinni.

Brolin hefur leikið Thanos í nokkrum myndum í Marvel-kvikmyndum og mun endurtaka hlutverkið í næstu Avengers-mynd.

Myndband af Brolin að lesa tíst Trumps má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×