Lífið

Leoncie hellti sér yfir ritstjóra Séð og heyrt í beinni

Birgir Olgeirsson skrifar
„Ég hef aldrei reynt við Leoncie,“ sagði Eiríkur Jónsson, ritstjóri Séð og heyrt, í Harmageddon í morgun þar sem hann gerði upp deilur á milli hans og tónlistarkonunnar Leoncie sem hefur sagst ætla í meiðyrðamál við tímaritið fyrir að segja frá aldri hennar.

Séð og heyrt sagði frá frá upptökum nýs myndbands Leoncie við lag hennar „Enginn tríkantur hér“. Var minnst á það í fréttinni að íslenski rapparinn Elli Grill hafi verið með í för og sagður 44 ára aldursmunur á milli þeirra, Elli 24 ára en Leoncie 68.

Í yfirlýsingu sem Leoncie birti í kjölfarið á vefnum Menn.is sakaði hann Eirík Jónsson um hatur og öfundsýki í sinn garð. Sagði hún hann hafa reynt við sig fyrir mörgum árum og verið súr vegna þess að hún hafnaði honum.

Í viðtali við Harmageddon í morgun þvertók Eiríkur fyrir að hafa reynt við Leoncie og sagðist ekkert hafa á móti henni. Í kjölfarið var hringt í söngkonuna sem lét Eirík heyra það og sagði hann lygara og geðveikan.

Hlusta má á þessa atburðarás í spilaranum hér fyrir ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×