Erlent

Leonard Nimoy er látinn

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Leonard Nimoy
Leonard Nimoy vísir/getty
Leikarinn Leonard Nimoy er látinn 83 ára að aldri. Nimoy var þekktastur fyrir að hafa leikið Spock í Star Trek þáttunum. Hann hafði ítrekað þurft að leggjast inn á sjúkrahús á undanförnum mánuðum.

Í fyrra upplýsti hann um að hann þjáðist af langvinnum lungnasjúkdómi þrátt fyrir að hafa hætt að reykja fyrir rúmum þremur áratugum. Afleiðingar sjúkdómsins, sem kallast COPD, eru mikill hósti, andnauð og tíðar sýkingar.

Nimoy var eini leikarinn úr upprunalegu seríunum sem var einnig í nýjustu myndinni sem kom út árið 2013.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×