Bíó og sjónvarp

Leo sagður gera tilkall til Óskarsins fyrir þessa mynd

Birgir Olgeirsson skrifar
Leonardo DiCaprio í The Revenant.
Leonardo DiCaprio í The Revenant. Vísir/Youtube.
Margir bíða spenntir eftir kvikmyndinni The Revenant sem verður frumsýnd í desember en stikla úr myndinni var frumsýnd í dag.

Myndin sækir innblástur í lífshlaup hins bandaríska Hugh Glass sem var uppi í á nítjándu öld. Myndin segir frá atburðum sem eiga sér stað eftir að félagar hans, sem töldu hann af eftir árás bjarnar, skilja hann eftir í óbyggðum lífshættulega særðan.

Leikstjóri myndarinnar er Alejandro González Iñárritu en hann er maðurinn á bak við myndina Birdman sem var valin besta myndin á Óskarsverðlaunahátíðinni í ár. Iñárritu hlaut auk þess Óskarinn fyrir leikstjórn og handrit.

Með hlutverk Hugh Glass fer Leonardo DiCaprio en auk hans leika Tom Hardy og Domhnall Gleeson í myndinni sem verður ekki frumsýnd fyrr en á jóladag í Bandaríkjunum en nú þegar er farið að tala um hana í sambandi við tilnefningar til Óskarsverðlauna.

Velta margir því fyrir sér hvort DiCaprio muni hljóta verðlaunin eftirsóttu fyrir þetta hlutverk en hann hefur fjórum sinnum áður verið tilnefndur fyrir leik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×