Lífið

Leo framleiðir mynd um górillur

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Myndin fylgir afrískum þjóðgarðsvörðum.
Myndin fylgir afrískum þjóðgarðsvörðum. Vísir/Getty
Hollywood-stjarnan Leonardo DiCaprio er framleiðandi nýrrar heimildarmyndar fyrir Netflix.

Myndin heitir Virunga eftir þjóðgarði í Austur-Kongó þar sem myndin er tekin, en hún fjallar um afrískar fjallagórillur í útrýmingarhættu.

Myndin kemur út á Netflix 7. nóvember, á sama tíma og hún verður sýnd í bandarískum kvikmyndahúsum.

Myndin fylgir þjóðgarðsvörðum og sýnir baráttu þeirra við veiðiþjófa.

„Við munum vinna með Leo til að kynna áhorfendum um allan heim ótrúlega og grípandi sögu,“ sagði einn yfirmanna hjá Netflix í samtali við The Hollywood Reporter.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×