Enski boltinn

Lennon skrifaði undir til þriggja ára hjá Everton

Aaron Lennon í leik með Everton á síðasta tímabili.
Aaron Lennon í leik með Everton á síðasta tímabili. Vísir/getty
Enski kantmaðurinn Aaron Lennon skrifaði í kvöld undir þriggja ára samning hjá Everton en hann gengur til liðs við félagið frá Tottenham.

Lennon sem er uppalinn hjá Leeds var á mála hjá Tottenham í tíu ár en hann lék alls 364 leiki fyrir Tottenham og skoraði í þeim 30 mörk.

Fékk hann fá tækifæri hjá félaginu fyrri hluta síðasta tímabils en hann eyddi síðari hluta tímabilsins á láni hjá Everton. Lék hann alls sextán leiki í bláu treyjunni á síðasta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×