Íslenski boltinn

Lennon hetja FH

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Lennon í leik gegn KR síðasta sumar
Lennon í leik gegn KR síðasta sumar vísir/eyþór
Steven Lennon tryggði FH stig gegn HK þegar liðin mættust í Lengjubikarnum í Kórnum í kvöld.

HK komst yfir um miðbik fyrri hálfleiks og leiddi í leikhléi, 1-0. FH var í erfiðleikum með vörn HK og það var ekki fyrr en á 90. mínútu leiksins sem Skotinn náði að jafna metin, en hann hafði komið inn sem varamaður á 64. mínútu.

Liðin spila í riðli 4 og er FH með fjögur stig eftir þrjá leiki. HK er með tvö.

Fyrr í vetur mættust liðin í Fótbolta.net mótinu þar sem HK fór með sigur, Inkasso deildar liðið virðist vera með ágætt tak á Hafnfirðingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×