Innlent

Lengsta þingi sögunnar frestað

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Alþingi snýr aftur að loknum kosningum.
Alþingi snýr aftur að loknum kosningum. vísir/eyþór
145. þingi Alþingis var frestað í dag. Er það lengsta þingið talið í þingfundardögum eða 147 dagar alls. Þing kemur aftur saman eftir kosningarnar sem fara fram 29. október næstkomandi.

Einar K. Guðfinnson, forseti Alþingis, flutti ræðu áður en að Sigurður Ingi Jóhannsson frestaði fundum þingsins. Sagði Einar að þingið hefði verið langt, starfsamt og annasamt. Það þing sem næst kemst því þingi sem var frestað í dag að lengd var 116. þing sem hófst 17. ágúst 1992. Þá voru þingfundadagar 131.

„Þetta langa þing hefur haft ýmislegt í för með sér. Meðal annars hafa ráðherrar aldrei svarað óundirbúið mörgum fyrirspurnum frá þingmönnum eða 347 fyrirspurnum,“ sagði Einar og bætti við að aldrei hafi fleiri þingsályktunartillögur verið samþykktar á þingi, 72 ályktanir alls.

Sagði hann ekkert háleitara það en að vinna í umboði almennings að framfaramálum. Sagði hann mögulegt að neikvæð viðhorf til stjórnmála hefðu orðið til þess að beina ungu fólki inn á aðrar brautir en Alþingi. Hvatti hann ungt fólk til þess að hasla sér völl í stjórnmálum og freista þess að ná kjöri.

Einar, sem ekki snýr aftur á þing, þakkaði fyrir sig og sagði að sér hefði fundist gott að starfa á þingi. Svandís Svavarsdóttir færði honum þakkir þingheims og afhenti honum blómvönd.

Ýmis frumvörp voru samþykkt á lokametrum þingsins. Þar á meðal var frumvarp um fasteignalán til neytenda, frumvarp um aðgerðir stjórnvalda gegn skattsvikum, frumvarp um út­lendinga, frumvarp um Grænlandssjóð og frumvarp um millidómsstig.

Þá voru samþykktar þingsályktunartillögur um að utanríkisráðherra yrði falið að sækja um aðild Íslands að Geimvísindastofnun Evrópu auk tillögu til þingsályktunar um hvernig minnast skuli aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×