Fótbolti

Lengsta ferðalagið á HM 2022 eins og að fara á milli Anfield og Old Trafford

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katarbúar eru að byggja marga glæsilega leikvanga.
Katarbúar eru að byggja marga glæsilega leikvanga. Vísir/Getty
Næsta heimsmeistarakeppni í fótbolta fer fram í Rússlandi eftir eitt og hálft ár og er undankeppnin í fullum gangi. Keppnin fjórum árum síðar hefur hinsvegar verið í uppnámi í langan tíma en er nú að taka á sig mynd.

Forráðamenn heimsmeistarakeppninnar í Katar 2022 ætla að gera fólki afar auðvelt að ferðast á milli keppnisstaða ætli það sér að sjá margra leiki í keppninni.

Katarbúar hafa nú reiknað út fjarlægðina á milli allra átta leikvanganna sem keppt verður á á HM 2022. HM 2022 mun fara fram á 28 dögum frá 21. nóvember til 18. desember 2022.

Mótshaldarar segja að lengsta ferðlagið á milli leikvanga í keppninni sé aðeins 55 kílómetrar sem er samskonar vegalengd og á milli Old Trafford (Manchester United) og Anfield (Liverpool). Sem dæmi eru 52 kílómetrar á milli Kaplakrikavallar (FH) og Akranesvallar (ÍA).

Minnsta fjarlægðin á milli leikvanga er síðan aðeins 4,5 kílómetrar eða eins og að fara á milli Emirates-leikvangsins (Arsenal) og White Hart Lane (Tottenham). Sem dæmi eru 5 kílómetrar á milli Víkingsvallar (Víkingur R.) og Kópavogsvallar (Breiðablik).

Þessi litlu ferðalög liðanna þýða að þau geta gist á sama stað allt mótið en ekki verið á fleygiferð eins og íslenska landsliðið á EM í Frakklandi í sumar.

Heimsmeistaramótið í Brasilíu árið 2014 bauð upp á gríðarleg ferðlög fyrir liðin og stuðningsmenn þeirra. Þar var lengst 3140 kílómetrar á milli liða en styst um 340 kílómetrar.  Það verður líka mikið um ferðlög á HM í Rússlandi sumarið 2018.

Móthaldarar reyna nú eftir fremsta megni að byggja upp meiri jákvæða umfjöllun í kringum komandi heimsmeistaramót árið 2022. Þetta var eitt skrefið í því.

Ákvörðun að fara með keppnina til Katar hefur fengið mikla gagnrýni enda flestum ljóst að Katarbúar höfðu keypt framkvæmdastjórn FIFA.

Þetta skapaði mörg vandamál og endanum varð að færa HM úr steikjandi hita júní- og júlímánaðar inn á veturinn svo ekki væri lífshættulegt fyrir leikmenn og stuðningsfólk að vera á ferðinni í Katar á meðan heimsmeistaramótinu stæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×