Innlent

Lengri barátta ekki endilega endað öðruvísi

Sæunn Gísladóttir skrifar
Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðingur, segir lágt fylgi Davíðs eitt af stóru tíðindunum í kosingabaráttunni.
Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðingur, segir lágt fylgi Davíðs eitt af stóru tíðindunum í kosingabaráttunni. Fréttablaðið/Hörður Sveinsson
Kjörsóknin í nýliðnum forsetakosningum, sem mældist 75,7 prósent, var í takt við kosningu nýs forseta. Hún var minni fyrir fjórum árum þar sem þjóðin var ekki að kjósa sér nýjan forseta á kjördag. Þetta er mat Eiríks Bergmanns stjórnmálafræðings. Hann segir ómögulegt að segja hvort baráttan hefði endað öðruvísi ef hún hefði verið lengri.

„Kjörsókn á Íslandi hefur í rauninni verið há. Hér er rótgróin og mjög sterk lýðræðishefð, þó að þetta embætti sé sérkennilegt, þá hafa Íslendingar mikinn áhuga á því. Svo kom smávægileg hreyfing á þetta þegar fylgið fór á hreyfingu í lokin,“ segir Eiríkur.

„Ég hugsa að niðurstaðan hefði svo sem ekki endilega orðið önnur ef kosningabaráttan hefði verið lengri. Ég myndi halda að Halla hafi toppað á alveg hárréttum tíma, mikil fylgisaukning í einu hendingsstökki án þess þó að vera meðhöndluð í kosningabaráttunni sem mögulegur forseti. Hún fer óáreitt í gegnum kosningabaráttuna, aðrir frambjóðendur líta ekki á hana sem keppinaut og fjölmiðlar krefja hana ekki svara um feril sinn eins og gert er þegar að fólk á möguleika á kjöri. Hefði kjörið verið seinna, þá hefði hún þurft að sæta meiri gagnrýni.“ Eiríkur telur þó erfitt að meta áhrif þess á fylgið.

Eiríkur segir fylgi Davíðs Oddsonar eitt af stórtíðindunum í kosningabaráttunni. „Hann var lang gagnrýnastur á Guðna og gerði veigamestu tilraunirnar til þess að vega að honum og sá tónn og bragur kannski fellur ekkert sérstaklega vel að forsetakjöri. Þetta er annars konar embætti heldur en átakavettvangur stjórnmálanna og ég er ekki viss um að fólki líki sérstaklega vel við þann tón. Ég hugsa að sú útgáfa sem við sáum í sjónvarpinu á kosningakvöldi hafi verið mun vænlegri til árangurs."

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 27. júní




Fleiri fréttir

Sjá meira


×