Menning

Lengi dreymt um að vinna með Bergþóri

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Sunna segist vel geta hugsað sér að gera meira af því að semja lög við ljóð þekktra skálda.
Sunna segist vel geta hugsað sér að gera meira af því að semja lög við ljóð þekktra skálda. Mynd: Hörður Sveinsson
„Mig hefur lengi langað til að gera eitthvað með Bergþóri og ég greip tækifærið núna,“ segir Sunna Gunnlaugsdóttir djasspíanisti sem í hádeginu í dag heldur tónleika í Háteigskirkju ásamt Bergþóri Pálssyni. „Upphaflega var tríóið mitt bókað á þessa tónleika, en svo þurfti bassaleikarinn að fara til Austurríkis og þá ákvað ég að láta þennan draum um að vinna með Bergþóri rætast.“



Á tónleikunum flytja þau tónsmíðar Sunnu við ljóð eftir Tómas Guðmundsson, Óskar Árna Óskarsson og Nínu Björk Árnadóttur. Tvö verkanna eru óútgefin en önnur er að finna á hljómdiski Sunnu, Fagra veröld, sem kom út árið 2002. „Kristjana Stefánsdóttir söng lögin á þeirri plötu,“ segir Sunna. „En það eru þarna lög við tvö ljóð eftir Tómas Guðmundsson sem henta betur fyrir karlsöngvara. Svo eru nýju lögin tvö við ljóð eftir Óskar Árna og Nínu Björk.“



Sunna segist ekki hafa gert mjög mikið af því að semja lög við ljóð þekktra skálda og vildi gjarna gera meira af því. „Ég gerði það fyrir þessa plötu, Fögru veröld, en ég hef ekki lagt mikla rækt við þetta síðan. Samt hef ég mjög gaman af því að semja lög við ljóð annarra og kannski nýti ég tækifærið núna með Bergþóri til að gera þetta að stærra verkefni.“

Tónleikarnir hefjast klukkan 12 í dag og taka um hálfa klukkustund.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×