Tónlist

Lemonade aðgengileg á iTunes eftir miðnætti

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sjötta plata Beyoncé heitir Lemonade.
Sjötta plata Beyoncé heitir Lemonade. vísir
Eins og Vísir greindi frá fyrr í dag gaf Beyoncé út sína sjöttu plötu í gær en hún hefur aðeins verið aðgengileg á streymisveitunni Tidal sem er í eigu eiginmanns söngkonunnar, rapparans Jay Z.

Var jafnvel talið að platan, sem heitir Lemonade, yrði aðeins aðgengileg á Tidal og kæmi ekki út á geisladisk og/eða vínyl eða á iTunes. Þetta virðist ekki vera rétt þar sem New York Times fullyrðir í kvöld að platan verði til sölu á iTunes eftir miðnætti og vitnar í tvo einstaklinga sem hafa fengið upplýsingar um hvernig útgáfu Lemonade verður háttað.

Apple neitaði hins vegar að tjá sig og þá svaraði fjölmiðlafulltrúi Beyoncé ekki beiðni blaðsins um að veita upplýsingar um málið.

Í dag tilkynnti Tidal að auk þess sem hægt yrði að streyma Lemonade þá yrði hægt að kaupa plötuna á 17,99 dollara og hlaða henni niður. Ekki var þó tekið fram hvort platan yrði gerð aðgengileg á öðrum streymisveitum.

Miðað við streymisveitur á borð við Spotify og Apple Music eru fáir áskrifendur að Tidal, eða aðeins um þrjár milljónir. Það er hins vegar spurning hvort að fleiri áskrifendur hafi bæst við í dag eftir að Lemonade kom út en áskrifendur að Spotify eru um 30 milljónir og 11 milljónir eru í áskrift hjá Apple Music.

Beyoncé mun því ná til mun fleiri hlustenda ef Lemonade verður aðgengileg á fleiri stöðum en bara Tidal. Að því er fram kemur í umfjöllun New York Times er það augljóst að Beyoncé hefur verið undir þrýstingi út frá markaðssjónarmiðum að koma plötunni í meiri dreifingu strax, og því verður hún komin á iTunes aðeins 24 tímum eftir útgáfuna á Tidal.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×