Leikurinn sem allir óttast

Fréttablaðið Enski boltinn 28. janúar 2012 09:00
Luis Suárez og Patrice Evra í leiknum afdrifaríka í október. Í kjölfarið var sá fyrrnefndi dæmdur í átta leikja bann.
Luis Suárez og Patrice Evra í leiknum afdrifaríka í október. Í kjölfarið var sá fyrrnefndi dæmdur í átta leikja bann. Mynd/AFP
Kjartan Guðmundsson skrifar:
Við vinnum náið með báðum félögum, lögreglunni í Manchester og stuðningsmannasamtökunum í aðdraganda leiksins, meðan á honum stendur og að honum loknum.

Ef athygli okkar verður vakin á óviðeigandi ummælum eða hegðun meðal áhorfenda verður tekið á því af festu," segir í yfirlýsingu sem lögreglan á Merseyside-svæðinu, varnarþingi Liverpool, sendi frá sér í vikunni vegna viðureignar Liverpool og erkifjendanna í Manchester United í ensku bikarkeppninni sem fram fer í dag.

Leikir þessara tveggja sigursælustu liða í sögu enskrar knattspyrnu hafa áratugum saman verið þrungnir spennu. Utanaðkomandi aðstæður valda því þó að margir hræðast óvenju mikið að upp úr sjóði milli aðdáenda liðanna tveggja í dag með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Yfirlýsing Merseyside-lögreglunnar ber þessum titringi berlega vitni.


Leikurinn sem allir óttast
Suárez dæmdur í bann
Forsagan er sú að 20. desember síðastliðinn var Luis Suárez, framherji Liverpool frá Úrúgvæ, dæmdur í átta leikja bann og 40.000 punda sekt af enska knattspyrnusambandinu fyrir að viðhafa móðgandi orðbragð í garð Patrice Evra, hins franska varnarmanns Manchester United, í leik liðanna í ensku deildinni á Anfield, heimavelli Liverpool, í október.

Eftir leikinn kærði Evra Suárez fyrir að hafa beitt sig kynþáttaníði. Suárez neitaði ásökununum og bæði félögin studdu sína leikmenn í hvívetna. Knattspyrnusambandið skipaði nefnd sem gerði rannsókn á atvikinu og voru niðurstöður hennar, sem birtar voru í 115 síðna langri skýrslu, á þá leið að Suárez hefði gerst brotlegur við reglur sambandsins.

Í grófum dráttum gekk vörn Suárez út á að orðið negro, sem Suárez var dæmdur fyrir að nota um Evra, gæti haft allt aðra og jákvæðari merkingu í Suður-Ameríku en í Evrópu. Þessu hafnaði rannsóknarnefndin og tók jafnframt fram að Frakkinn hefði verið áreiðanlegt vitni, öfugt við Úrúgvæjann.

Stjórnendur Liverpool ákváðu að áfrýja ekki úrskurði nefndarinnar en ítrekuðu trú sína á sakleysi Suárez og héldu því fram að í raun og veru hefði ekkert saknæmt sannast á leikmanninn. Í sama streng tóku ýmsir sem rýndu í skýrsluna og sögðu hana einungis réttlætingu á fyrirframgefinni niðurstöðu. Aðrir fögnuðu banninu á Suárez og sögðu það lið í þeirri viðleitni að losa knattspyrnuna við allt sem flokkast getur undir kynþáttaníð fyrir fullt og allt.


Tom Adeyemi.
Tom Adeyemi. Mynd/AFP
Umtal í kringum Liverpool
Sjálft bannið á Suárez er þó einungis hluti af titringnum sem einkennt hefur atburðarásina. Skömmu áður en dómurinn á hendur Suárez féll hituðu leikmenn Liverpool upp fyrir deildarleik gegn Wigan í stuttermabolum með mynd af leikmanninum á, til að sýna honum stuðning.

Meðal þeirra sem klæddust téðum stuttermabolum var Glen Johnson, þeldökkur varnarmaður liðsins, og hlaut hann bágt fyrir hjá mörgum vegna þessa. Sjálfur sagðist Johnson hafa sínar ástæður fyrir því að styðja Suárez, en þetta uppátæki leikmannanna mæltist víða illa fyrir og ekki síst hjá bresku pressunni.

Ekki skánaði svo umtalið í kringum Liverpool eftir bikarleik gegn Oldham í byrjun janúar. Þá brast Tom Adeyemi, hinn tvítugi miðjumaður Oldham, í grát eftir að svo virtist sem einn áhorfandi eða fleiri í Liverpool-stúkunni hefðu verið með kynþáttafordóma gagnvart leikmanninum. Einn var handtekinn vegna málsins, en það mun enn vera í rannsókn.


Leikurinn sem allir óttast
Allt á suðupunkti
Þegar rígurinn milli stuðningsfólks félaganna tveggja er tekinn með í reikninginn verður því að teljast ansi líklegt að allt verði á suðupunkti í leiknum í dag. Þá bætist við sú staðreynd að stuðningsmenn síðarnefnda liðsins verða rúmlega helmingi fleiri á Anfield en vanalegt er vegna reglna ensku bikarkeppninnar, sem eykur líkurnar á vandræðum talsvert. Luis Suárez er enn í leikbanni en Patrice Evra mun vera leikfær og líklegur til að vera í byrjunarliðinu.

Forsvarsmenn Liverpool og Manchester United hafa fundað sín á milli og biðlað til aðdáenda sinna að sýna stillingu. Knattspyrnunnar vegna hljóta vonir allra að standa til þess að þeim verði að ósk sinni.

Fleiri fréttir - Enski boltinn

Enski boltinn 22. feb. 2012 23:30

Ertu á leið til Indónesíu? Hvernig væri að gista á Hótel Stevie G

Eldheitir stuðningsmenn Liverpool í Indónesíu hafa opnað hótel þar sem enska félagið er he...  

Meira
Enski boltinn 22. feb. 2012 22:15

Ferguson: Ég held að Rio hafi fundið upp Twitter

Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, er ekkert sérstaklega hrifinn af Twitter-væðingunni se...  

Meira
Enski boltinn 22. feb. 2012 19:43

Mancini ánægður með afsökunarbeiðni Tevez

Roberto Mancini, stjóri Manchester City, tjáði sig um afsökunarbeiðni Carlos Tevez eftir s...  

Meira
Enski boltinn 22. feb. 2012 18:15

Gerrard: Loksins úrslitaleikur á Wembley | Æskudraumurinn rætist

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, hefur leitt sitt lið til sigurs í tveimur úrslitaleik...  

Meira
Enski boltinn 22. feb. 2012 16:34

Rooney er veikur og verður ekki með á móti Ajax á morgun

Wayne Rooney missir af seinni leik Manchester United og Ajax í Evrópudeildinni á morgun en...  

Meira
Enski boltinn 22. feb. 2012 14:45

Chelsea að bjóða Sturridge í skiptum fyrir Walcott

Enska slúðurblaðið The Sun sló því upp í morgun að Chelsea sé á eftir Theo Walcott hjá Ars...  

Meira
Enski boltinn 22. feb. 2012 13:00

Bellamy verður með á móti Cardiff | Ætlar ekki að fagna ef hann skorar

Craig Bellamy, framherji Liverpool, verður klár í úrslitaleik deildabikarsins á móti Aroni...  

Meira
Enski boltinn 22. feb. 2012 12:15

Samir Nasri: Arsenal verður að læra að vinna ljóta sigra

Samir Nasri, fyrrum leikmaður Arsenal og núverandi leikmaður Manchester City, hefur sýna s...  

Meira
Enski boltinn 22. feb. 2012 11:45

Bendtner missir bílprófið í 56 daga | Var of seinn í flug

Nicklas Bendtner, danski framherji Arsenal sem er á láni hjá Sunderland, er búinn að missa...  

Meira
Enski boltinn 21. feb. 2012 22:17

Tevez bað City afsökunar

Carlos Tevez hefur nú beðið Manchester City afsökunar á framferði sínu í tengslum við leik...  

Meira
Enski boltinn 21. feb. 2012 22:09

West Ham aftur á toppinn

West Ham kom sér aftur á topp ensku B-deildarinnar með 4-1 sigri á Blackpool í kvöld. Alls...  

Meira
Enski boltinn 21. feb. 2012 17:37

John Terry þarf að fara í aðgerð á hné | Frá í tvo mánuði

John Terry, fyrirliði Chelsea, þarf að fara í aðgerð vegna meiðslanna sem hafa haldið honu...  

Meira
Enski boltinn 21. feb. 2012 17:30

Ferguson sér eftir því að hafa ekki keypt Joe Hart á sínum tíma

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir það hafa verið mistök hjá sér að kaupa ...  

Meira
Enski boltinn 21. feb. 2012 16:00

Eigendur West Ham reyndu að fá bæði Torres og Tevez

David Gold og David Sullivan, eigendur enska félagsins West Ham, ætluðu sér stóra hluti í ...  

Meira
Enski boltinn 21. feb. 2012 14:15

Manchester United lánar Kuszczak til Watford

Tomasz Kuszczak, markvörður Manchester United, hefur verið lánaður til enska b-deildarliðs...  

Meira
Enski boltinn 21. feb. 2012 11:15

Andre Villas-Boas óskar eftir stuðningi frá eiganda Chelsea

Portúgalinn Andre Villas-Boas er mikið í fréttum þessa dagana enda hefur fátt gengið upp h...  

Meira
Enski boltinn 21. feb. 2012 10:15

Robin van Persie gæti fengið risasamning hjá Arsenal

Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Arsenal eru með það efst á forgangslistanum að semj...  

Meira
Enski boltinn 21. feb. 2012 09:31

Benitez orðaður við Chelsea | hitnar undir Villas-Boas

Nafn Spánverjans Rafa Benitez hefur skotið upp á yfirborðið í enskum fjölmiðlum og segir D...  

Meira
Enski boltinn 20. feb. 2012 22:30

Petit: Wenger er ennþá rétti maðurinn fyrir Arsenal

Emmanuel Petit, fyrrum leikmaður Arsenal, er sannfærður um að það yrðu stór mistök hjá Ars...  

Meira
Enski boltinn 20. feb. 2012 21:00

Nicky Butt og Bryan Robson hrifnir af Tom Cleverley

Nicky Butt og Bryan Robson spiluðu báðir á miðjunni hjá Manchester United á sínum tíma og ...  

Meira
Enski boltinn 20. feb. 2012 15:00

Wenger gæti fengið 11 milljarða kr. til þess að kaupa leikmenn

Það hefur ekki gengið vel hjá Arsenal og Arsene Wenger að undanförnu. Liðið er í mikilli l...  

Meira
Enski boltinn 20. feb. 2012 14:45

Niall Quinn kveður Sunderland

Niall Quinn, fyrrum stjórnarformaður Sunderland, tilkynnti í dag að hann hefði yfirgefið f...  

Meira
Enski boltinn 20. feb. 2012 13:30

Ferguson ætlar að taka 2-3 ár til viðbótar hjá Man Utd

Sir Alex Ferguson er staðráðinn í því að halda áfram í starfi sínu sem knattspyrnustjóri e...  

Meira
Enski boltinn 20. feb. 2012 11:15

Wenger: Meistaradeildarsæti ígildi titils

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir mikilvægt fyrir félagið að tryggja sér fjó...  

Meira
Enski boltinn 19. feb. 2012 20:45

Yaya Toure gæti lagt landsliðsskóna á hilluna

Yaya Toure, leikmaður Manchester City, gat ekki staðfest það við fjölmiðla ytra hvort leik...  

Meira
Enski boltinn 19. feb. 2012 19:00

Andre Villas-Boas bjartsýnn fyrir leikinn gegn Napoli

Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Chelsea, er bjartsýnn fyrir leikinn gegn Napoli í 16-...  

Meira
Enski boltinn 19. feb. 2012 18:22

Liverpool flaug áfram í bikarnum | Brighton gerði þrjú sjálfsmörk

Liverpool er komið áfram í 8-liða úrslit ensku bikarkeppninnar eftir þægilegan sigur á Bri...  

Meira
Enski boltinn 19. feb. 2012 16:30

Búið að draga í 8-liða úrslit enska bikarsins

Dregið var í 8-liða úrslitum enska bikarsins í dag en leikirnir fara fram í mars....  

Meira
Enski boltinn 19. feb. 2012 15:54

Spurs náði ekki að skora gegn C-deildarliði Stevenage

Tottenham sýndi ekki neina meistaratakta er liðið sótti C-deildarlið Stevenage heim. Stjör...  

Meira
Enski boltinn 19. feb. 2012 13:55

Tíu leikmenn Stoke lögðu Crawley af velli

Stoke City er komið áfram í ensku bikarkeppninni eftir 0-2 útisigur á neðrideildarliði Cra...  

Meira
Enski boltinn 19. feb. 2012 13:00

Redknapp mun ráðfæra sig við soninn um landsliðið

Harry Redknapp, stjóri Spurs, segir það ekki koma til greina að taka að sér landsliðsþjálf...  

Meira
Enski boltinn 18. feb. 2012 20:01

Villas-Boas óttast ekki um starf sitt

Andre Villas-Boas, stjóri Chelsea, segir að hvorki starf hans né tímabil Chelsea sé undir ...  

Meira
Enski boltinn 18. feb. 2012 19:19

Arsenal úr leik í bikarnum eftir tap gegn Sunderland

Það gengur hvorki né rekur hjá Arsenal þessa dagana og í kvöld féll liðið úr leik í ensku ...  

Meira
Enski boltinn 18. feb. 2012 16:59

Ipswich valtaði yfir Aron Einar og félaga

Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff City töpuðu mjög óvænt, 3-0, gegn Ipswich Town ...  

Meira
Enski boltinn 18. feb. 2012 16:54

Ekkert óvænt í enska bikarnum

Það var ekkert um óvænt úrslit í enska bikarnum í dag. Bæði Everton og Bolton lögðu andstæ...  

Meira
Enski boltinn 18. feb. 2012 14:26

Chelsea náði ekki að leggja Birmingham | Hitnar undir Villas-Boas

Chelsea og Birmingham þurfa að mætast á nýjan leik í ensku bikarkeppninni eftir að liðin g...  

Meira
Enski boltinn 18. feb. 2012 13:45

Warnock tekinn við Leeds United

Leeds United staðfesti í dag að það hefði ráðið Neil Warnock sem knattspyrnustjóra félagsi...  

Meira
Enski boltinn 18. feb. 2012 11:45

Zlatan ráðleggur Van Persie að yfirgefa Arsenal

Svíinn Zlatan Ibrahimovic er ekkert í sérstöku uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Arsenal í dag...  

Meira
Enski boltinn 18. feb. 2012 08:30

Gylfi tekur bestu horn í heimi

Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Sigurðsson hefur slegið í gegn með Swansea í ensku úrvals...  

Meira
Enski boltinn 17. feb. 2012 23:45

Eigandi LA Galaxy vill kaupa Tottenham

Svo gæti farið að Tottenham yrði selt á næstunni en afþreyingarfyrirtækið AEG er sagt ætla...  

Meira
Enski boltinn 17. feb. 2012 21:00

Man. Utd og Barcelona vilja fá Rami

Það stefnir í mikinn slag á milli Man. Utd og Barcelona um þjónustu varnarmannsins Adil Ra...  

Meira
Enski boltinn 17. feb. 2012 19:00

Yaya Toure: Við þurfum á Tevez að halda

Miðjumaður Man. City, Yaya Toure, hefur ekki neinar áhyggjur af því að endurkoma Carlos Te...  

Meira
Enski boltinn 17. feb. 2012 18:15

Petit: Wenger þarf að hreinsa út hjá Arsenal

Emmanuel Petit, fyrrum miðjumaður Arsenal, er á því að Arsene Wenger, stjóri Arsenal, þurf...  

Meira
Enski boltinn 17. feb. 2012 16:00

Chelsea hætt við Hazard | Fer líklega til Spurs

Chelsea er sagt hafa dregið sig úr úr kapphlaupinu um belgíska framherjann Eden Hazard. Þa...  

Meira
Enski boltinn 17. feb. 2012 15:15

Mertesacker fór í aðgerð og verður lengi frá

Það er lítið um góðar fréttir í herbúðum Arsenal í þessari viku og til að bæta gráu ofan á...  

Meira
Enski boltinn 17. feb. 2012 13:45

Beckham vill fá Redknapp sem landsliðsþjálfara

Það fjölgar enn í hópi þeirra sem vilja að Harry Redknapp, stjóri Spurs, taki við enska la...  

Meira
Enski boltinn 17. feb. 2012 11:30

Ranieri: Villas-Boas verður rekinn ef hann vinnur ekki bikar

Claudio Ranieri, stjóri Inter og fyrrum stjóri Chelsea, hefur varað Andre Villas-Boas, stj...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Fótbolti / Enski boltinn / Leikurinn sem allir óttast