Innlent

Leikur sem hjálpar börnum að læra íslensku stafina

Hrund Þórsdóttir skrifar
Börnin okkar er fjölskyldufyrirtæki sem stofnað var af Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og manni hennar Andra Ómarssyni, ásamt bróður Bergrúnar og konu hans. Þau hafa gefið út leikinn Stafirnir okkar. „Hugmyndin kviknaði þegar drengurinn okkar fór að stafa á ensku. Okkur langaði að bjóða upp á valkost fyrir íslensk börn, svo þau gætu lært íslensku stafina,“ segir Andri.

Í leiknum er stafrófið kynnt með vönduðum myndum eftir Bergrúnu og orð hvers bókstafs er lesið og kynnt í samhengi. Leikurinn kostar 450 krónur og hefur hann undanfarið verið vinsælasti leikurinn í App store á Íslandi. „Svo er bara von á fleiri myndapökkum sem bætast í lekinn. Ég er byrjuð að teikna svo það er nóg að gera,“ segir Bergrún.

Þau segja börn mjög hrifin af spjaldtölvum og snjallsímum og því sé nauðsynlegt að bjóða upp á uppbyggjandi efni. Leikurinn hefur fengið góð viðbrögð. „Ég heyrði frá einni mömmu sem græddi klukkutíma lengra kúr á sunnudagsmorgni af því að sonurinn var alveg fastur í leiknum en hann er að læra eitthvað þannig að það er frábært ,“ segir Bergrún.

Þau stefna á að gefa út fleiri leiki í nánustu framtíð en hægt er að fá upplýsingar um Stafina okkar á Facebooksíðu leiksins.

Eins og sagt var frá í fréttum okkar í gær hefur lesskilningur grunnskólabarna í Reykjavík ekki verið lakari frá árinu 2005 og geta aðeins 63% sjö ára barna lesið sér til ánægju. Kannski geta leikir eins og Stafirnir okkar haft jákvæð áhrif. „Það væri mjög jákvætt að sjá hann fara batnandi,“ segir Bergrún að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×