Körfubolti

Leikur KR og Keflavíkur sýndur beint á Vísi í kvöld - Valtýr Björn lýsir

Magnús Þór Gunnarsson mætir í DHL-höllina í kvöld.
Magnús Þór Gunnarsson mætir í DHL-höllina í kvöld. Mynd/Daníel
Bein sjónvarpsútsending verður á fréttavefnum Vísi í kvöld þar sem KR tekur á móti Keflavík í Iceland Express-deild karla í körfuknattleik.

Um nýjung er að ræða á Vísi og mun Valtýr Björn Valtýsson lýsa. Leikurinn hefst kl. 19.15 og hefst útsendingin skömmu áður.

Tveir aðrir leikir eru á dagskrá í deildinni á sama tíma. Nýliðar Vals taka á móti toppliði Grindavíkur. Í Stykkishólmi eigast við Snæfell og Njarðvík.

Fimmtu umferð lýkur annað kvöld með þremur leikjum: Haukar – Fjölnir, Þór Þ. – Stjarnan og Tindastóll – ÍR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×