Fótbolti

Leikur Íslands og Englands stærri fjölmiðlaviðburður en Spánn - Ítalía

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Mikill áhugi er á leiknum í kvöld en þar verða um 3.000 Íslendingar.
Mikill áhugi er á leiknum í kvöld en þar verða um 3.000 Íslendingar. vísir/vilhelm
Leikur Íslands og Englands í 16 liða úrslitum EM 2016 í fótbolta er stærri fjölmiðlaviðburður en viðureign Spánar og Ítalíu sem fer fram klukkan 16.00 að íslenskum tíma í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá KSÍ.

Samkvæmt upplýsingum KSÍ verða 250 skrifandi blaðamenn á leik Íslands og Englands í kvöld og 100 ljósmyndarar. Auk þess verða 100 lýsendur frá 60 sjónvarpsstöðvum.

Í sömu upplýsingum kemur fram að á vellinum verða ríflega 3.000 Íslendingar en Ísland fékk aðeins 3.000 miða til að selja. Aðrir hafa bjargað sér eftir öðrum leiðum og má því búast við aðeins fleiri en 3.000 á Riviera-vellinum í kvöld.

Leikur Íslands og Englands hefst klukkan 19.00 að íslenskum tíma en í boði er farseðill í átta liða úrslitin. Sigurvegarinn mætir Frakklandi á Stade de France á sunnudaginn.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Nú mega lömbin sparka

England og Ísland mætast í fyrsta mótsleik þjóðanna í sögunni á EM 2016 í Nice í kvöld. Í boði er farseðill í átta liða úrslitin á Evrópumótinu í Frakklandi. Síðast mættust liðin í vináttuleik á Manchester-stadium fyrir tólf árum þegar strákarnir okkar voru notaðir sem boxpúðar sem máttu ekki slá á móti.

EM-dagbókin: Af hverju getur Ísland ekki unnið England?

Ég stóð uppi í stúku á Allianz Riviera-vellinum, eða Hreiðrinu eins og við köllum það, og fylgdist með æfingu íslenska liðsins eftir blaðamannafundinn í Nice í gær. Menn voru bara að skokka í hringi eins og alltaf á þessum opnu fimmtán mínútum.

EM í dag: Nice í Nice

Það er leikdagur. Ísland - England í 16-liða úrslitum EM og það á frönsku rivíerunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×