Bíó og sjónvarp

Leikur Daniel Radcliffe áfram Harry Potter?

Daniel Radcliffe
Daniel Radcliffe Vísir/Getty
Harry Potter-rithöfundurinn J.K. Rowling kom aðdáendum bókanna heldur betur á óvart í vikunni en hún birti glænýja Harry Potter smásögu sem eingöngu kemur út á vefnum.

Daniel Radcliffe var í kjölfarið á blaðamannafundi Television Critics Association spurður hvort kæmi til greina að leika galdrastrákinn á nýjan leik.

„Ég veit það ekki,“ svaraði Radcliffe.

„Ég hneigist eiginlega að því að segja nei. En það er ekkert í umræðunni hvort eð er. Ég hef ekki einu sinni lesið söguna. En ég ætla að gera það,“ sagði Radcliffe um smásöguna sem er einungis 1500 orða löng og skrifuð af fréttasnápnum Ritu Skeeter.

„En mér skilst að sagan sé mjög stutt og ég er ekki viss um að þessi saga sé efni í heila kvikmyndaaðlögun.“

„Hann er að minnsta kosti tólf árum eldri í sögunni en ég er núna, þannig að ég held að ég þurfi ekki að hafa áhyggjur af þessu í einhvern tíma. Ég vona það allavega,“ sagði Radcliffe að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×