Innlent

Leikstjóri vill viðhalda draumi mömmu sinnar

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Brynja Benediktsdóttir lést árið 2008 og eiginmaður hennar Erlingur Gíslason fyrr á þessu ári. Saman létu þau eftir sig miklar húseignir á Laufásvegi 22.
Brynja Benediktsdóttir lést árið 2008 og eiginmaður hennar Erlingur Gíslason fyrr á þessu ári. Saman létu þau eftir sig miklar húseignir á Laufásvegi 22. vísir/Anton Brink
„Ég bíð spenntur eftir svörum embættismannanna og fagfólksins, hvort þetta sé mögulegt,“ segir Benedikt Erlingsson leikstjóri sem óskar eftir heimild til að skipta húseignum foreldra sinna heitinna í tvo hluta.

Bræðurnir Benedikt og Friðrik Erlingssynir eru erfingjar húsanna á Laufásvegi 22 sem leikarahjónin Erlingur Gíslason og Brynja Benediktsdóttir heitin létu eftir sig. Um er að ræða 252 fermetra einbýlishús og 227 fermetra vinnustofu. Benedikt segir í bréfi til borgaryfirvalda að þeir bræður þurfi að selja eignina en ef fallist verði á að skipta lóðinni í tvennt opnist fyrir hann sá möguleiki að taka vinnustofuna, sem nefnt er Skemmtihúsið, sem sinn arfshluta.

„Ég ræð ekki við það einn að taka þetta allt,“ segir Benedikt sem vill fá leyfi til að vera með íbúð á neðri hæð vinnustofunnar.

„Ég vildi láta gamlan draum móður minnar um skemmtihúsið rætast þannig að ég gæti verið þarna með vinnustofu listamanns. Konan mín, Charlotte, gæti verið með námskeið og ég ímynda mér að vera þarna með vinnustofu og aðstöðu sem kvikmyndaskáld og leikstjóri og leikari,“ útskýrir Benedikt.

Benedikt Erlingsson leikstjóri og leikari. Fréttablaðið/Valli
Lagt er til í beiðni Benedikts að lóðinni verði einfaldlega skipt eftir miðri verönd sem tengir húsin tvö. Hann segir að þótt enginn hafi enn óskað eftir kaupum á eigninni – enda sé hún ekki komin á sölu –verði það sjálfsagt helst fjársterkir aðilar á borð við gistiheimili, fasteignafélög eða fjárfestingafélög sem falist eftir íbúðarhúsinu.

„Þannig að í pólitík borgarinnar gæti þetta þjónað þeim hagsmunum að það yrði fjölbreyttari byggð í miðbænum,“ bendir Benedikt á sem jákvæða hliðarverkun þess að hann fái ósk sína uppfyllta. „Ég er að bíða eftir svörum, það geta ekki farið fram skipti milli okkar bræðra fyrr en þetta kemst á hreint.“

Eins og er hafa meðlimir hljómsveitarinnar Sigur Rósar aðstöðu í Skemmtihúsinu. Benedikt segir það ekki hugmyndina að vera þar með reglulegt sýningarhald gangi áætlun hans eftir. „Við ætlum ekki að vera með einhvern massívan leikhúsrekstur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×