Bílar

Leiknir mótorhjólamenn

Finnur Thorlacius skrifar
Svo leiknir eru sumir á mótorhjólum að það dugar þeim einfaldlega ekki að stjórna þeim listilega heldur blanda þeir saman ökuleikni sinni og hittni með hinum ýmsu hlutum.

Þessir tveir sem hér sjást, Julien Welsche og Guillome Gleyo, taka þessa list í hæstu hæðir með körfuboltum, svifdiskum, fótboltum, hornaboltakylfum, eldi, vatnsblöðrum, hjólbrettum og fleira  dóti sem til fellur. Leikni þeirra er á fárra færi og sjón sögu ríkari. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×