Fótbolti

Leikmenn Wales sjá ekki eftir því að hafa fagnað sigri Íslands: „Allir halda með Íslandi“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Á eftir Íslendingum og kannski Færeyingum má segja að leikmenn Wales hafi fagnað sigri strákanna okkar gegn Englandi í Nice á mánudagskvöldið hvað mest.

Leikmenn Wales horfðu saman á leikinn og algjörlega biluðust þegar flautað var til leiksloka en myndband af fögnuði Walesverja hefur farið eins og sinueldur um internetið og gert marga reiða, sérstaklega á Englandi.

Wales er eins og Ísland komið í átta liða úrslitin og er nú eina breska þjóðin sem eftir er á Evrópumótinu en England, Írland og Norður-Írland voru öll send heim í 16 liða úrslitunum.

Sjáðu fögnuð Walesverja:
Velsku leikmennirnir hafa verið harðlega gagnrýndir um ýmsum áttum fyrir fögnuðinn en þeim er nákvæmlega sama.

„Ég sé ekki eftir neinu,“ sagði hægri bakvörðurinn Chris Gunter á blaðamannafundi í gær. „Þetta lítur kannski út fyrir að vera aðeins of mikið en það var aldrei meiningin. Við erum bara svo stoltir að vera síðasta breska þjóðin sem eftir er í mótinu. Við vorum afskrifaðir áður en bolta var sparkað á þessu móti rétt eins og Ísland þannig eðlilega fögnum við sigri þeirra.“

„Ísland er í svipaðri stöðu og við. Þetta er minni þjóð sem gengur vel. Eins og við komst Ísland á Evrópumótið þrátt fyrir að vera í virkilega erfiðum undanriðli. Þeir laumuðu sér ekkert inn. Ísland er búið að standa sig mjög vel og það er frábært fyrir fótboltann,“ sagði Chris Gunter.

Neil Taylor, félagi Gunter í vörn Wales, tók undir þetta: „Ísland er búið að vera ótrúlegt á þessu móti en þess vegna fögnuðum við svona mikið. Það halda allir með Íslandi. Það átti enginn að sjá okkur fagna en ég skil hvernig þetta lítur út. Við vorum bara að standa með annarri smáþjóð,“ sagði Neil Taylor.


Tengdar fréttir

EM-dagbók: Ekkert vandræðalegt við tapið í Nice

Síðan flautað var til leiksloka á Stade de Nice í fyrrakvöld og frækinn sigur strákanna okkar á Englendingum var staðreynd hafa enskir fjölmiðlar keppst við að gera lítið úr eigin landsliði.

Draumasóknin sem sendi Englendinga heim af EM

Óánægðir Bretar buðu upp á Brexit 1.0 en aðeins nokkrum dögum síðar bjó súpersókn íslenska fóboltalandsliðsins til Brexit 2.0 og sendi súra Englendinga enn einu sinni snemma heim af stórmóti í fótbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×