Enski boltinn

Leikmenn Manchester United í flugvél sem var nauðlent í Kína

Stefán Árni Pálsson skrifar
Leikmenn Manchester United eru staddir í Kína um þessar mundir þar sem liðið undirbýr sig fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni. United tekur þátt á International Champions Cup og leikur þó nokkra æfingaleiki þar í landi.

Í gær átti liðið að ferðast frá Shanghai til Peking en United leikur gegn Manchester City á morgun. Flugferðin fór ekki vel en flugmenn vélarinnar urðu að nauðlenda vélinni í Tianjin þar sem veðrið var það slæmt að ekki var hægt að halda förinni áfram.

Hollendingurinn Memphis Depay birti myndband á Facebook-síðu sinni þar sem hann segir ferðasöguna en myndbandið má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×