Enski boltinn

Leikmenn Leicester fá enga bónusa fyrir að vinna titilinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Strákar, við fáum engan aukabónus.
Strákar, við fáum engan aukabónus. vísir/getty
Takist Leicester City hið ómögulega og standi uppi sem Englandsmeistari í vor fá leikmenn liðsins enga bónusa aukalega.

Leicester er sem stendur með fimm stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, eitthvað sem ekki nokkur einasti maður bjóst við, ekki einu sinni Leicester-menn.

Fyrir hvert tímabil hvert semja félög við leikmenn um árangurstengda bónusa en í samningum leikmanna Leicester er engin klásúla um bónusa fyrir að vinna deildina. Það gerði einfaldlega ekki nokkur maður hjá Leicester ráð fyrir því að liðið yrði í þessari stöðu.

Forgangsatriðið hjá Leicester fyrir tímabilið var að forðast fall og voru bónusarnir í samræmi við það markmið.

Fyrir að lenda í 17. sæti, næsta sæti fyrir ofan liðin í fallsæti, áttu Leicester-menn að fá 3,5 milljónir sem skiptust svo niður á leikmenn í samræmi við fjölda leikja sem þeir spiluðu eða voru í hóp.

Upphæðin hækkaði eftir því sem Leicester endaði ofar en 4,5 milljónir fengust fyrir að enda í 16. eða 15. sæti deildarinnar, 5,5 fyrir 14. og 13. sæti og hámarksupphæðin var 6,5 milljónir punda fyrir 12. sætið og allt fyrir ofan það. Leikmenn Leicester hefðu m.ö.o. fengið jafn háan bónus fyrir að enda í 12. sæti eða því efsta.

Ekki er heimilt að breyta bónusgreiðslum meðan á tímabilinu stendur eins og Vincent Tan, tælenskur eigandi Cardiff City, komst að þegar hann lofaði leikmönnum Cardiff 3,7 milljóna punda aukabónus fyrir að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni vorið 2014. Hann þurfti svo að draga loforðið til baka eftir að hafa verið kynntur fyrir þessari reglugerð.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×