Íslenski boltinn

Leikmenn HK pissuðu á fána Breiðabliks: Atvikið fordæmt og harmað

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér má sjá mynd af félagsheimilinu við Fagralund.
Hér má sjá mynd af félagsheimilinu við Fagralund. vísir/ernir
HK-ingar köstuð af sér vatni á fána erkifjendanna og nágrannanna í Breiðabliki eftir 7-2 tap HK gegn Leiknis Fárskrúðsfirði í gær. Vefsíðan 443 greindi frá því í dag.

Leikmenn HK héldu lokahóf sitt í gærkvöldi og fékk 433 sendar tvær myndir sem sýna að pissað hafi verið á fána Breiðabliks sem hékk fyrir utan Fagralund, félagsheimili HK. Í dag deila bæði Blikar og HK-ingar svæðinu og því var fáninn eðlilega á sínum stað.

HK-ingar hafa nú sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins og má lesa hana hér að neðan. Yfirlýsingin birtist fyrst á heimasíðu HK:

Í tilefni af frétt sem birtist á vefnum 433.is í dag og varðar ósæmilega meðferð á fána Breiðabliks fyrir utan Fagralund þar sem lokahóf knattspyrnudeildar HK var haldið í gærkvöldi, vill stjórn knattspyrnudeildar koma eftirfarandi á framfæri.

Atvik þetta er bæði fordæmt og harmað af hálfu knattspyrnudeildar HK og félagsins alls. Framkoma af þessum toga er hvorki sæmandi né í samræmi við góðan anda og gott samstarf félaganna tveggja.

Ekki er ljóst hverjir stóðu að þessu athæfi en stjórn knattspyrnudeildar HK hefur í hyggju að bregðast við þessu með því að ítreka við félagsmenn sína og iðkendur að siðareglur félagsins skuli hafðar í heiðri öllum stundum og að framkoma af þessum toga muni ekki vera liðin.

Eftir að atvikið varð ljóst var umræddur fáni Breiðabliks þveginn af HK-ingum og dreginn að húni á ný.

Stjórn knattspyrnudeildar HK biður alla Blika innilega afsökunar á þessu atviki.

Frétt uppfærð klukkan 01:15

Fréttamenn á 433 hafa breytt frétt sinni og ekki lengur fullyrt að leikmenn hafi pissað á fána Breiðabliks.


Tengdar fréttir

Leiknismenn héldu sér uppi á ótrúlegan hátt

Ótrúlegir hlutir gerðust í lokaumferð Inkasso-deildarinnar í knattspyrnu í dag þegar Leiknir Fárskrúðsfjörður náði að bjarga sæti sínu í deildinni á lygilegan hátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×