Fótbolti

Leikmaðurinn sem Barcelona má ekki vera án og hann heitir ekki Messi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Samuel Umtiti í hópi leikmanna Barcelona.
Samuel Umtiti í hópi leikmanna Barcelona. Vísir/Getty
Barcelona tapaði í spænsku deildinni um helgina og náði þar með ekki að fylgja eftir mögnuðum sigri sínum á Paris Saint Germain í Meistaradeildinni í síðustu viku.

Lionel Messi var með Barcelona í leiknum en liðið saknaði hinsvegar Brasilíumannsins Neymar og franska varnarmannsins Samuel Umtiti.

Neymar átti stórleik á móti Paris Saint Germain og hefði örugglega getað búið eitthvað til í sókninni en tölfræðin sýnir þó  að mikilvægi Samuel Umtiti í vörninni er kannski enn meira þrátt fyrir að hann sé á sínu fyrsta ári.

Neymar auglýsir hæfileika sína í næstum því hverjum leik en færri taka kannski eftir frammistöðu Samuel Umtiti sem virðist þó hafa mikil áhrif á gengi liðsins.

Bæði mörkin sem Barcelona fékk á sig í tapinu á móti Deportivo La Coruna komu eftir föst leikatriði og þar hefði Samuel Umtiti getað bjargað miklu.

Barcelona keypti hinn 23 ára gamla Samuel Umtiti í sumar fyrir 25 milljón evrur frá Olympique Lyonnais.

Tölfræði Barcelona með og án Samuel Umtiti í spænsku deildinni í vetur er hreinlega sláandi. Liðið hefur unnið alla sextán leikina með hann innanborðs en aðeins tvo af ellefu án hans.

En hver er ástæðan? Leikstíll Barcelona-liðsins hefur mikið um það að segja.

Það er nefnilega ekki fyrir hver sem er að spila í Barcelona-vörninni enda þarf viðkomandi varnarmanni að líða einstaklega vel með boltann og geta spilað honum vel frá sér.

Samuel Umtiti smellpassar þarna inn í Barca liðið því hann hjálpar liðinu að verjast í háloftunum um leið og hann er mjög öruggur með boltann.

Umtiti hefur sýnd veikleikamerki eins og í 4-0 tapinu í fyrri leiknum á móti Paris Saint Germain og í 2-1 tapi á móti Athletic Bilbao í spænska bikarnum en það eru undantekningarnar.

Frammistaða Samuel Umtiti á fyrsta ári og það að hann er aðeins 23 ára gamall bendir til þess að þarna sé á ferðinni framtíðarleiðtogi Barcelona-varnarinnar næstu árin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×