Lífið

Leikkona í SKAM segist fara með aðalhlutverkið í fjórðu þáttaröðinni

atli ísleifsson skrifar
Ulrikke Falch, sem fer með hlutverk Vilde, hefur gefið áhugasömum vísbendingu um hver verði aðal.
Ulrikke Falch, sem fer með hlutverk Vilde, hefur gefið áhugasömum vísbendingu um hver verði aðal. instagram
Eva var í aðalhlutverki í fyrstu þáttaröð norsku unglingaþáttanna SKAM, Noora í annarri og Ísak í þeirri þriðju.

Tilkynningar um hver verði í aðalhlutverki fjórðu þáttaraðarinnar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu og nú hefur Ulrikke Falch, sem fer með hlutverk Vilde, gefið áhugasömum vísbendingu um hver verði aðal. Mx.dk segir frá þessu.

Falch setti í gær mynd á sjálfri sér á Instagram þar sem stóð: „Ég er aðalpersóna fjórðu þáttaraðarinnar“.

Skömmu síðar hafði textanum verið breytt í „4“. Þó tókst að ná skjáskoti af fyrri færslunni áður en henni var breytt.

Ekki er þó hægt að útiloka að Falch sé viljandi að villa fyrir aðdáendum.

4

A photo posted by Ulrikke Falch (@ulrikkefalch) on


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×