Tónlist

Leikið með andstæða póla

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Sindri hefur verið að vinna með hljólabrettamerkinu Alien Workshop. Hann hefur gert boli og hjólabrettaplötur með merkinu.
Sindri hefur verið að vinna með hljólabrettamerkinu Alien Workshop. Hann hefur gert boli og hjólabrettaplötur með merkinu. Mynd/Ingibjörg Birgisdóttir
Sindri Már Sigfússon eða Sin Fang eins og hann kallar sig þegar hann gerir tónlist sóló, gaf nú nýlega út sína fjórðu sólóplötu í fullri lengd, Spaceland, en hann hefur einnig gefið út slatta af EP-plötum og öðru styttra efni – gaf til að mynda út EP-plötuna Space Echoes núna fyrir næstum viku, auk þess sem hann er„frontman“ í hljómsveitinni Seabear og orðið á götunni segir að hann leiki stórt hlutverk í dularfullu hljómsveitinni Gangly (sem er kannski ekkert svo dularfull lengur).

Spaceland er á yfirborðinu hress og poppuð plata en ef vel er hlustað kemur í ljós að undir ljósu yfirborðinu má finna talsvert dekkri hluti.

Síðasta plata Sindra, Flowers, kom út árið 2013, svo að hann hefur tekið sér ágætis tíma í að vinna að nýju plötunni.

„Já, þetta myndi líklegast teljast erfið fæðing. Ég samdi að minnsta kosti mjög mörg lög en það enduðu bara 9 á plötunni. Það tók mig tíma að finna tóninn sem ég var búinn að heyra fyrir mér og hljóðblöndunin var ekki jafn laus í reipunum og oft hefur verið hjá mér,“ segir Sindri aðspurður hvort það hafi verið erfitt að vinna þessa nýju plötu. Sindri virðist hafa fundið þennan hljóm og hann er nokkuð ferskur, Spaceland er dálítið öðruvísi en fyrri verk hans.

„Þetta er í rauninni fyrsta breiðskífan sem ég gef út sem er algjörlega byggð á raftónlist. Svo er þetta líklega poppaðasta platan mín hingað til – ég held að lagasmíðarnar séu nú svipaðar en útsetningar og sánd er líklega það poppaðasta sem ég hef gert.“

Eru einhver þemu eða konsept sem þú ert að vinna með á þessari plötu?

„Textarnir eru með sjálfshjálparþema og hljóðheimurinn litast dálítið af þeim takmörkunum sem ég setti sjálfum mér, að nota bara „raftónlistarhljóðfæri“, hljómborð, samplera og tölvu.“

Platan er bæði svolítið „bleak“ en á sama tíma poppuð. Er það meðvituð pæling eða stílbragð hjá þér eða er þetta bara þinn stíll?

„Já, ég hef alltaf verið hrifinn af þeim andstæðum, það er að segja poppuð tónlist með „bleak“ textum. Annars urðu lögin og textarnir eiginlega alltaf til í sitthvoru lagi.“

Sindri hefur gefið út fjórar plötur sem Sin Fang auk þess að vera með slatta af öðrum járnum í eldinum.Mynd/Ingibjörg Birgisdóttir
Nú eru nokkrir góðir gestir með þér á plötunni. Geturðu aðeins sagt hverjir það eru og hvers vegna akkúrat þessir gestir? 

„Mig langaði til að vera með gestasöngvara með mér í nokkrum lögum. Þetta er allt bara eitthvert fólk í kringum mig sem vill svo til að er snillingar. Jónsi [úr Sigurrós] var kópródúsent á plötunni, við Sóley [sem einnig spilar með Sindra í Seabear] höfum spilað saman í hljómsveitum og ferðast út um allt í mörg ár, við Jófríður [Ákadóttir söngkona í Samaris, Pascal Pinion, Gangly og sóló sem JFDR] höfum verið að vinna saman seinustu ár að ýmsu og Farao [norsk tónlistarkona] kynntist ég þegar hún var hérna á Íslandi að taka upp plötu með vini mínum.

Alex Somer og Jónsi voru kó­pródúsentar, við tókum tvær vikur af upptökum saman og gáfu þeir mér góð ráð. Ég mixaði plötuna með Styrmi Hauks.“

Verða ekki alveg örugglega útgáfutónleikar einhvern tíma? 

„Jú, ætli það ekki bara. Þarf að fara að spá í því.“

Eitthvað annað í deiglunni sem tengist útgáfunni? 

„Jú, síðasta plata sem ég gerði kom út í forsölu sem hjólabretti frá Alien Workshop. Í þetta skiptið ætlum við að gera langermaboli í samstarfi við Alien Workshop.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×