Handbolti

Leikhléið hjá Degi snéri leiknum og Þjóðverjar tóku bronsið | Myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í þýska landsliðinu í handbolta tryggðu sér í dag bronsverðlaunin á Ólympíuleikunum í Ríó með því að vinna sex marka sigur á Póllandi í leiknum um þriðja sætið.

Anton Brink, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, er staddur í Ríó og tók meðfylgjandi myndir.

Þýskaland vann leikinn 31-25 eftir að hafa fjórum mörkum yfir í hálfleik, 17-13. Þetta var annar sigur Þjóðverja á Talant Duyshebaev og hans mönnum í pólska landsliðinu á þessum Ólympíuleikum.

Pólska liðið var þremur mörkum yfir þegar Dagur Sigurðsson tók leikhlé um miðjan fyrri hálfleik. Degi tókst heldur betur að vekja sína menn sem unnu næstu þrettán mínútur 9-2 og litu ekki til baka eftir það.

Hornamennirnir Tobias Reichmann (7 mörk) og Uwe Gensheimer (6 mörk) voru markahæstir í þýska liðinu en líkt og áður er breiddin mikil í liðinu og margir að skila til liðsins. Línumaðurinn Patrick Wiencek skoraði mikið í lokin og endaði með fimm mörk.

Íslensku þjálfararnir skila því allir verðlaunum á þessum Ólympíuleikum því Þórir Hergeirsson vann brons með norska kvennalandsliðinu í gær og Guðmundur Guðmundsson er með danska karlaliðið í úrslitaleiknum seinna í dag.

Þýska liðið vann sex af átta leikjum sínum á leikunum einu töpin komu á móti Brasilíumönnum í riðlinum og svo á móti Frökkum með einu marki í undanúrslitaleiknum á föstudaginn.

Þjóðverjar skoruðu mark ekki fyrstu fjórar mínútur leiksins og Pólverjar komust fyrir vikið í 2-0. Pólska liðið var síðan áfram með frumkvæðið og var komið þremur mörkum yfir, 8-5, þegar Dagur Sigurðsson tók leikhlé þegar hálfleikurinn var hálfnaður.

Dagur náði hinsvegar að kveikja í sínum mönnum í þessu leikhléi. Pólska liðið skoraði ekki í sjö og hálfa mínútu og á meðan skoruðu Þjóðverjar fimm mörk í röð og komust í 10-8.

Þýska liðið bætti enn við og komst fjórum mörkum yfir, 14-10, þegar aðeins þrettán mínútur voru liðnar frá leikhléi Dags. Sjö marka sveifla á þessum frekar stutta tíma sem þýska liðið vann 9-2.

Þjóðverjar voru á endanum fjórum mörkum yfir í hálfleik, 17-13, og með leikinn í sínum höndum. Steffen Weinhold átti mjög góða innkomu í liðið eftir leikhléið.

Pólverjar skoruðu fyrsta mark seinni hálfleiks en þýska liðið vann næsta fimm mínútna kafla 4-1 og var um leið búið að ná sex marka forystu, 21-15.

Þýska liðið náði mest sjö marka forystu en Pólverjarnir komu þessu niður í fjögur mörk með smá endaspretti í lokin. Hann var þó hvergi nógu öflugur til að ógna sigri Þjóðverjanna.

Dagur Sigurðsson náði í sín önnur verðlaun með þýska landsliðinu í dag.Vísir/Anton



Fleiri fréttir

Sjá meira


×