Erlent

Leikarinn John Heard er látinn

Atli Ísleifsson skrifar
Catherine O'Hara og John Heard fóru með hlutverk foreldra Kevin í Home Alone myndunum.
Catherine O'Hara og John Heard fóru með hlutverk foreldra Kevin í Home Alone myndunum.
Bandaríski leikarinn John Heard er látinn, 72 ára að aldri. Heard var einna þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Peter McCallister í Home Alone myndunum. Ekki er vitað hvað dró Heard til dauða.

Heard fannst látinn á hóteli í Palo Alto í Kaliforníu þar sem hann var að jafna sig eftir aðgerð á baki.

Heard lék einnig í myndinum Cat People, After Hours, Big, Beaches og Gladiator. Þá kom hann fram í sjónvarpsþáttunum Miami Vice og Sopranos. Hann hlaut tilnefningu til Emmy verðlauna fyrir hlutverk sitt í Sopranos.

Heard eignaðist þrjú börn á ævi sinni, en sonur hans, Max, lést í desember síðastliðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×