Lífið

Leika sér að því að smækka Trump á myndum

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Eins og sjá má er Donald Trump, bara næstum krúttlegur svona lítill.
Eins og sjá má er Donald Trump, bara næstum krúttlegur svona lítill. Vísir/Skjáskot
Notendur á vefsíðunni Reddit hafa að undanförnu leikið sér að því að breyta myndum af Donald Trump, forseta Bandaríkjanna og smækka hann.

Um er að ræða alvöru myndir sem teknar hafa verið af Trump við hinar ýmsu athafnir og hafa notendurnir breytt stærð Trump þannig að hann er einungis rúmlega hálfur metri að lengd.

Eins og sjá má er útkoman stórkostleg og fer það forsetanum bara nokkuð vel að vera í þessari hæð.

Vísir/Skjáskot
Vísir/Skjáskot
Vísir/Skjáskot
Vísir/Skjáskot
Vísir/Skjáskot
Vísir/Skjáskot





Fleiri fréttir

Sjá meira


×