Tónlist

Leika nokkra klassíska jazz standarda á Kex í kvöld

Anna stundar nám við Konunglega tónlistarháskólann í Stokkhólmi.
Anna stundar nám við Konunglega tónlistarháskólann í Stokkhólmi. Mynd/Jonas
Í kvöld kemur kvartett píanóleikarans Önnu Grétu Sigurðardóttur fram á jazzkvöldi sem haldið er á Kex Hostel.

Jazzkvöldin eru vikulegir viðburðir á hostelinu og hefur Anna spilað þar nokkrum sinnum áður, bæði ein og ásamt hljómsveit. „Núna verður þetta minn kvartett. Sigurður Flosason pabbi minn á saxófón, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa og Einar Scheving á trommur,“ segir hún og heldur áfram: „Við ætlum að spila nokkra svona klassíska jazz standarda og nokkur vel valin lög eftir sönglagahöfundinn Jimmy Van Heusen. Þetta verður bara svona afslappað og spontant.“

Anna er búsett í Svíþjóð þar sem hún stundar framhaldsnám við Konunglega tónlistarháskólan í Stokkhólmi en hún er nýkomin til landsins eftir að hafa spilað á skemmtiferðaskipi undanfarnar vikur.

„Ég var að spila á skemmtiferðaskipi í þrjár vikur á vesturströnd Grænlands. Þar spilaði ég ein þannig ég hlakka mikið til að spila með hljómsveit,“ segir hún glöð í bragði og bætir við að hún reyni alltaf að spila á einhverjum tónleikum hér á landi þegar hún er stödd á Íslandi. „Ég reyni að gera sem allra mest af því. Það er gaman að spila með pabba, við spilum svolítið saman.“

Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 á Kex Hostel, Skúlagötu 28 og er aðgangur ókeypis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×