Fótbolti

Leik Man City og Mönchengladbach frestað vegna rigningar | Myndir

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Þessir höfðu gaman þrátt fyrir úrhellið.
Þessir höfðu gaman þrátt fyrir úrhellið. vísir/getty
Leik Manchester City og Borussia Mönchengladbach í C-riðli Meistaradeildar Evrópu hefur verið frestað vegna veðurs.

Mikil rigning er í Manchester, svo mikil að leikurinn getur ekki farið fram.

Reynt verður að spila leikinn á morgun.

Barcelona og Celtic mætast í hinum leik kvöldsins í C-riðli.

Leikurinn hefst klukkan 18:45 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4 HD.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×