MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ NÝJAST 00:01

Karzai boðar friðarviðræður við talibana

FRÉTTIR

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍA - Breiðablik 1-1

Vísir Íslenski boltinn 23. júlí 2012 17:27
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍA - Breiðablik 1-1
MYND/PJETUR
Stefán Hirst Friðriksson á Akranesvelli skrifar:

ÍA og Breiðablik gerðu jafntefli eftir dramatískar lokamínútur á Akranesvelli í kvöld. Bæði mörkin komu á síðustu mínútum leiksins.

Leikurinn var afar rólegur fram að því en Árni Vilhjálmsson virtist hafa tryggt Blikum sigur með marki á 87. mínútu. En Jóhannes Karl Guðjónsson jafnaði metin fyrir heimamenn er hann skoraði úr víti sem var dæmt eftir að brotið var á Andra Adolphssyni.

Leikurinn fór hægt af stað í tiltölulega slæmu veðri á Skipskaga og áttu liðin í erfiðleikum að byggja upp spil á upphafsmínútunum.

Heimamenn fengu þó dauðafæri um miðbik hálfleiksins þegar Andri Adolphsson átti frábæran sprett framhjá vörn Blika en skot hans var vel varið af Ingvari Kale í marki Breiðabliks.

Fátt annað markvert gerðist í döprum fyrri hálfleik og staðan því markalaus í hálfleik.

Síðari hálfleikurinn var eins leiðinlegur og sá fyrri en þó áttu bæði lið ágætis tækifæri til þess að komast yfir í leiknum en tókst ekki.

Dramatíkin var þó gríðarleg í lok leiks en Breiðablik komst yfir á 87. mínútu með frábæru marki frá Árna Vilhjálmssyni. Hann fór þá auðveldlega framhjá vörn heimamanna og hamraði boltanum í nærhornið.

Heimamenn fengu svo vítaspyrnu þegar komið var langt inn í uppbótartíma en brotið var á Andra Adolphssyni vítaspyrnan umsvifalaust dæmd.

Jóhannes Karl Guðjónsson sýndi fádæma öryggi á punktinum og jafnaði leikinn fyrir sína menn.

Furðulegt atvik átti sér svo stað undir lok leiks en Sverrir Ingi Ingason, leikmaður Breiðabliks var þá vikið af velli.  Hann fékk þá sitt seinna gula spjald í leiknum, í kjölfarið af jöfnunarmarki Skagamanna.

Liðin höfðu ekki tíma til þess að ná sigurmarkinu því að dómari leiksins flautaði leikinn af í kjölfarið og jafntefli því staðreynd.


Þórður: Áttum að vera búnir að gera út um leikinn

„Ég er sáttur við stigið miðað við leikurinn þróaðist í restina. Við áttum þó að vera búnir að gera út um leikinn á þeim tímapunkti sem Breiðablik skorar en mér fannst við stjórna leiknum fram að því marki," sagði Þórður.


„Við fáum tvö til þrjú mjög góð færi í seinni hálfleiknum til þess að klára leikinn en það gekk ekki. Á góðum degi erum við búnir að klára þessa leiki en svona er þetta," bætti Þórður við.

Sóknarleikur liðsins var á köflum nokkuð dapur og saknaði liðið augljóslega Gary Martin, sem gekk til liðs við KR á dögunum. Þórður hafði þetta um málið að segja.

„Við erum að skoða hlutina en við tökum engan leikmann nema að hann sé betri en það sem við höfum. Mér fannst Garðar standa sig vel í dag og mér fannst sóknarleikurinn bara allt í lagi í dag. Við vorum að finna hann vel í lappir og okkur gekk vel út á köntunum þannig að ég var bara nokkuð sáttur við sóknarleikinn í dag," sagði Þórður Þórðarsson, þjálfari ÍA, í leikslok.


Ólafur: Helvíti grátlegt

„Þetta var helvíti grátlegt að ná ekki að klára þetta eftir að hafa náð opnunarmarkinu svona seint í leiknum. Þetta eru tvö stig töpuð hjá okkur í kvöld," sagði Ólafur.

„Mér fannst jafnteflið ekki sanngjörn úrslit. Við vorum að svara öllum aðgerðum Skagamanna virkilega vel og var þetta nokkuð þægilegt að mínu mati. Eftir að við komust forystu undir lokin með mjög góðu marki áttum við að klára þetta en þetta var ægileg dramatík í lok leiks," bætti Ólafur við.

Það vakti athygli að sóknarmaðurinn Petar Rnkovic var ekki í leikmannahóp liðsins í kvöld. Aðspurður um hvort að liðið væri að skoða leikmenn til þess að bæta við sagði Ólafur.

„Það er nóg búið að vera að gerast á félagsskiptaglugganum og hef ég ekkert um það að segja. Við erum með þá leikmenn sem við höfum og hvort að við ætlum okkur að bæta eitthvað við okkur verður bara að koma í ljós," sagði Ólafur.

„Það eru fleiri sem voru ekki í hóp. Hann verður á æfingu á morgun en hann var ekki valinn í hóp liðsins fyrir leikinn í kvöld," sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, eftir leik.




Þessi síða uppfærist sjálfkrafa á 30 sekúndna fresti

Boltavaktin:

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Íslenski boltinn 18. júní 2013 22:45

Uppgjör 7. umferðarinnar | Myndband

Þeir fimm leikir sem fóru fram í 7. umferð Pepsi-deild karla á sunnudagskvöldið voru gerðir upp í Pepsi-mörkunum á sunnudagskvöldið. Meira
Íslenski boltinn 18. júní 2013 22:00

Voru þetta sjálfsmörk? | Myndband

Tvö mörk voru skráð sem sjálfsmörk á leikjum sunnudagsins í Pepsi-deild karla. Myndbönd af þeim má sjá hér. Meira
Íslenski boltinn 18. júní 2013 16:52

Umfjöllun, viðtöl, einkunnir og myndir: Valur - ÍBV 1-1

Valur og ÍBV gerðu 1-1 jafntefli í lokaleik sjöundu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn fór fram á Vodafone-vellinum en Eyjamenn gerðu eina mark fyrri hálfleiksins og Valsmenn ... Meira
Íslenski boltinn 18. júní 2013 20:44

Hann fer í þessa tæklingu eins og fljúgandi skítakamar

"Þetta voru mjög sanngjörn úrslit,“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, eftir leikinn í kvöld. ‚ÍBV gerði, 1-1, jafntefli við Val á Vodafone-vellinum í lokaleik sjöundu umferð Pepsi-... Meira
Íslenski boltinn 18. júní 2013 17:33

Edda og Ólína á leið heim | Lítið æft hjá Chelsea

Landsliðskonurnar Edda Garðarsdóttir og Ólína Guðrún Viðarsdóttir eru allt annað en sáttar hjá Chelsea og vilja nú losna frá félaginu. Meira
Íslenski boltinn 18. júní 2013 16:00

Pétur Pétursson hafnaði ÍA | Þórður tekur ekki við

Þórður Guðjónsson, framkvæmdarstjóri ÍA, fékk að vita af því í gærkvöldi að Skagaliðið væri orðið þjálfaralaust en Þórður Þórðarson, fyrrum þjálfari liðsins, lét þá af störfum. Meira
Íslenski boltinn 18. júní 2013 15:11

Veðjuðu menn á rangan hest á Skaganum? | Myndband

Slæmt gengi ÍA var til umræðu í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport á sunnudagskvöld en í dag var tilkynnt að Þórður Þórðarson væri hættur sem þjálfari liðsins. Meira
Íslenski boltinn 18. júní 2013 14:52

Þórður hættur með ÍA

Þórður Þórðarson er hættur sem þjálfari ÍA í Pepsi-deild karla. Hann ákvað að stíga sjálfur til hliðar, eftir því sem kemur fram í yfirlýsingu frá ÍA. Meira
Íslenski boltinn 18. júní 2013 12:19

Strákar með sítt hár vilja halda í síddina

Víðir Þorvarðarson hefur vakið athygli fyrir að notast við buff þegar hann spilar með ÍBV í Pepsi-deild karla. Meira
Íslenski boltinn 17. júní 2013 11:59

Bæði vafamörkin skráð sem sjálfsmörk

Björn Daníel Sverrisson og Nichlas Rohde fengu vafamörkin tvö sem voru skoruð í Pepsi-deild karla í gærkvöldi ekki skráð á sig. Þau voru skráð sem sjálfsmörk. Meira
Íslenski boltinn 16. júní 2013 23:14

Tók snúðinn úr hárinu

"Ég ákvað að taka þennan snúð úr hárinu og leyfði vindinum að leika um lokkana. Það skilaði sér heldur betur í dag,“ sagði Óskar Örn Hauksson, leikmaður KR, sem skoraði eitt mark og lagði upp tv... Meira
Íslenski boltinn 16. júní 2013 00:01

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fylkir - Breiðablik 0-1

Snyrtilegt mark Nichlas Rohde dugði Blikum í 1-0 sigri þeirra á Fylkismönnum í Pepsi deild karla í kvöld. Lítið var um færi í leiknum og kom sigurmarkið úr skyndisókn 10 mínútum fyrir leikslok. Meira
Íslenski boltinn 16. júní 2013 00:01

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Stjarnan - Keflavík 1-0

Veigar Páll Gunnarsson skoraði eina markið í 1-0 sigri Stjörnunnar á Keflavík í 7. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Enn vinnur Stjarnan 1-0 sigra. Meira
Íslenski boltinn 16. júní 2013 00:01

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - ÍA 4-2

KR-ingar unnu 4-2 sigur á ÍA í stórskemmtilegum leik í 7. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Gestirnir af Skaganum leiddu í hálfleik 1-0. Meira
Íslenski boltinn 16. júní 2013 20:38

Allir sáu að markið átti ekki að standa

"Ég er að reyna að einblína á það jákvæða en það var mjög pirrandi að fá á okkur þetta fyrsta mark sem allir sáu, nema ákveðnir aðilar, að hafi verið ólöglegt," segir Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þór... Meira
Íslenski boltinn 16. júní 2013 00:01

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Víkingur Ó. - FH 0-4

Íslandsmeistarar FH sýndu mátt sinn í dag þegar þeir völtuðu yfir varnarlausa Víkinga í Ólafsvík. Heimamenn voru daprir og áttu engin svör við leik fimleikafélagsins sem vann að lokum 4-0 sigur án þes... Meira
Íslenski boltinn 16. júní 2013 00:01

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fram - Þór 4-1 | Myndir

Hólmbert Aron Friðjónsson var hetja Framara í dag. Kantmaðurinn skoraði þrennu í 4-1 sigri liðsins á Þór í 7. umferð Pepsi-deildar karla. Meira
Íslenski boltinn 16. júní 2013 18:26

Lykilmenn meiddir hjá ÍA

Markvörðurinn Páll Gísli Jónsson og miðvörðurinn Ármann Smári Björnsson eru ekki í liði Skagamanna sem sækja topplið KR heim í Pepsi-deild karla í kvöld. Meira
Íslenski boltinn 16. júní 2013 17:14

Djúpmenn elta Grindvíkinga

BÍ/Bolungarvík vann 2-1 heimasigur á KF í lokaleik 6. umferðar 1. deildar karla í dag. Meira
Íslenski boltinn 16. júní 2013 16:47

Hlynur Atli búinn að undirbúa fagn gegn Fram

"Þetta verður sérstakt. Ég er búinn að bíða eftir þessu lengi. Það er meiri spenna en fyrir venjulegan leik," segir Þórsarinn Hlynur Atli Magnússon. Meira
Íslenski boltinn 16. júní 2013 10:00

Brjósklos útilokað hjá Andra Ólafssyni

"Ég vona að ég fái að æfa á þriðjudaginn," segir Andri Ólafsson leikmaður KR. Andri hefur verið frá keppni í allt sumar vegna meiðsla. Meira
Íslenski boltinn 16. júní 2013 00:01

Miðstöð Boltavaktarinnar | Allir leikirnir á einum stað

Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum dagsins í Pepsi-deild karla samtímis. Meira
Íslenski boltinn 15. júní 2013 22:00

Vrenko skoraði fallegasta markið

Niðurstöður liggja fyrir í kosningu lesanda Vísis um fallegasta markið í 6. umferð Pepsi-deilar karla. Meira
Íslenski boltinn 15. júní 2013 19:39

Margrét Lára lauk námi í sálfræði

Markahæsti landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu frá upphafi, Margrét Lára Viðarsdóttir, útskrifaðist í dag með sálfræðigráðu frá Háskólanum á Akureyri. Meira
Íslenski boltinn 15. júní 2013 18:06

Annis með sigurmark Íslandsmeistaranna

Þór/KA vann nauman 1-0 sigur á Aftureldingu í lokaleik 7. umferðar Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í dag. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Sport / Fótbolti / Íslenski boltinn / Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍA - Breiðablik 1-1
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000