Handbolti

Leik ÍBV og FH frestað

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Eyjamenn fá óvænt frí í dag
Eyjamenn fá óvænt frí í dag vísir/ernir
Leik ÍBV og FH í Olís deildinni í handbolta sem átti að fara fram klukkan 15:00 í dag hefur verið frestað.

Flugi til Vestmannaeyja var aflýst svo Hafnfirðingar eru fastir á „meginlandinu“ og fresta þurfti leiknum.

Leikurinn mun þess í stað fara fram annað kvöld.

Liðin eru í baráttu um toppsæti Olís deildarinnar, Eyjamenn eru fimm stigum á eftir FH en eiga leik til góða.

Uppfært klukkan 13:45: HSÍ hefur staðfest að nýr leiktími er klukkan 19:30 annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×