Lífið

Leigubílstjóri blikkaði Þorgerði Katrínu og söng djúpri röddu

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hinn 59 ára gamli Héðinn Valdimarsson mætti flottur með sólgleraugu í Ísland Got Talent. Hann heillaði alla upp úr skónum með fallegum kántrísöng og endaði með því að blikka fyrrum menntamálaráðherrann, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Þorgerður viðurkenndi að hún væri veik fyrir djúpum röddum.

Héðinn sagði frá því í þættinum að hann er leigubílstjóri og hafði alltaf dreymt að koma fram. Hann söng lagið Help Me Make It Through the Night.

Hann sagði að enginn í kringum sig hafi vitað af því að hann hafi skráð sig til leiks.

Allir dómararnir gáfu honum „já“, þar á meðal eitt mjóróma frá Jóni Jónssyni eins og sjá má hér að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×