Viðskipti innlent

Leifsstöð mun tvöfaldast

ingvar haraldsson skrifar
Leifsstöð mun stækka verulega á næstu árum til að mæta auknum farþegafjölda. Á myndinni má sjá hvernig stefnt er að flugvöllurinn muni líta út árið 2040.
Leifsstöð mun stækka verulega á næstu árum til að mæta auknum farþegafjölda. Á myndinni má sjá hvernig stefnt er að flugvöllurinn muni líta út árið 2040. mynd/isavia
Flugstöð Keflavíkurflugvallar mun ríflega tvöfaldast að stærð á næsta aldafjórðungi. Bæta á við flugbraut austan megin við flugstöðina og fjölga flugstæðum úr 19 í 34.

Uppbyggingin miðar að því að hægt verði að koma aukinni umferð í gegnum flugvöllinn. Áætlanir Isavia gera ráð fyrir að farþegum muni fjölga um helming á næsta áratug og fjöldi þeirra nærri tvöfaldast fram til ársins 2040.

Búist er við að kostnaður við stækkunina muni nema á milli 150 og 200 milljörðum. Ekki er gert ráð fyrir að ríkissjóður muni leggja verkefninu til fé en Isavia er í eigu ríkisins. Þá er ekki gert ráð fyrir því að félagið þurfi að sækja sér aukið eigið fé til að fjármagna uppbygginguna.

Til skoðunar að einkaaðilar komi að uppbyggingunni

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur sagt að heppilegra gæti verið að einkaaðilar muni sjá um uppbyggingu flugvallarins.

„Ég er ekki síst að horfa til þess að það kann að vera heppilegt að ríkið taki ekki á sig alla þá áhættu sem fylgir því að fara í tugmilljarða viðbótarfjárfestingar á Keflavíkurflugvelli og það er ekki rökbundin nauðsyn að ríkið eigi hvern einasta fermetra í flughlöðum og tengibyggingum sem einkaaðilar hafa sýnt áhuga á að fjármagna og jafnvel eiga og reka,“ sagði Bjarni.

Endalegt skipulag kynnt í september

Áformin eru hluti af áætlun um framtíð Keflavíkurflugvallar sem norska hönnunarstofan Nordic Office of Architecture vann fyrir Isavia. Hönnunarstofan varð hlutskörpust í hönnunarsamkeppni um framtíð flugvallarins en niðurstöður hennar voru kynntar í síðasta mánuði.

Isavia vinnur nú með norsku hönnunarstofunni og hagsmunaaðilum að nánari útfærslu tillagnanna. Kynna á endanlega áætlun að skipulagi flugvallarins í september á þessu ári.


Tengdar fréttir

Lentu á Keflavíkurflugvelli með veikan farþega

Flugvél frá Lufthansa varð að lenda á Keflavíkurflugvelli um helgina vegna veikinda farþega. Hún var á leið frá Frankfurt í Þýskalandi til Vancouver í Kanada þegar veikindin komu upp.

Keflavíkurflugvöllur besti flugvöllur í Evrópu

Keflavíkurflugvöllur var nú á dögunum valinn besti flugvöllur í Evrópu 2014 af alþjóðasamtökum flugvalla, Airports Council International. Viðurkenningin er mikið ánægjuefni f

Keflavíkurflugvöllur eftir 25 ár

Flugstöðin verður stækkuð til norðurs og lögð verður ný norður-suður flugbraut vestan við flugvöllinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×