Erlent

Leiðtogar vilja herða loftárásir og landamæraeftirlit

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Cameron og Hollande hittust í París í morgun
Cameron og Hollande hittust í París í morgun Vísir/Gtety
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands og Francois Hollande, forseti Frakklands, hittust í París í morgun til þess að minnast fórnarlamba hryðjuverkaárásanna í París.

Leiðtogarnir funduðu einnig um viðbrögð ESB við árásunum og voru þeir sammála um að herða þyrfti landamæraeftirlit á ytri landamærum ESB án tafar.

Cameron sagðist styðja hertar loftárásir Frakka á ISIS í Sýrlandi í kjölfar hryðjuverkaárásanna í París og til þess að sýna þann stuðning í verki mun franski loftherinn fá aðgang að herflugstöð breska flughersins á Krít.

Sjá einnig: Sextán handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu í Brussel

Breski forsætisráðherann sagði að í vikunni væri von á aðgerðaráætlun Breta gagnvart ISIS en Cameron hefur lýst því yfir að Bretland muni taka þátt í loftárásum á ISIS.

Leiðtogarnir sammældust um að mikilvægt væri að ríki ESB gætu deilt upplýsingum sín á milli á mun skilvirkari hátt auk þess sem koma þyrfti lögum yfir ólöglega skotvopnamarkaði til þess að koma í veg fyrir árásir hryðjuverkamenn.

Sjá einnig: Brussel enn í herkví

Hollande lýsti því yfir að Frakkar myndu enn herða loftárásir gegn ISIS enda væri von á Charles de Gaulle, stærsta herskipi Frakka, til þess að taka þátt í loftárásunum.

Leiðtogarnir fóru einnig að Bataclan-tónlistarhöllinni þar sem þeir minntust fórnarlamba árásanna en 130 létust og hundruð særðust í árásunum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×