Erlent

Leiðtogar Evrópu sammála um að refsa Bretlandi

Samúel Karl Ólason skrifar
Nigel Farage, Mariane Le Pen og Theresa May.
Nigel Farage, Mariane Le Pen og Theresa May. Vísir/Getty
Leiðtogar Evrópusambandsins eru sammála um að sýna Englandi enga miskunn þegar kemur að úrsögn þeirra úr ESB. Það sé eina leiðin til að sporna gegn upprisu popúlista í Evrópu og halda ESB saman. Bretar verði að sætta sig við frjálst flæði fólks.

Svokallaðar popúlistahreyfingar eru þegar á miklu róli í Frakklandi, Hollandi og víðar. Til dæmis Marine Le Pen, leiðtogi National Front í Frakklandi staðið vel að vígi í skoðanakönnunum. Leiðtogar ESB óttast að hún gæti unnið óvæntan sigur eins og Donald Trump og forsvarsmenn Brexit-atkvæðagreiðslunnar í Bretlandi.

ESB óttast að ef Bretar fái góðan samning við sambandið gæti það hvatt önnur ríki til að segja sig einnig úr ESB.

Nigel Farage, einn forsvarsmanna Brexit og starfandi formaður UKIP, hefur varað leiðtoga ESB við því að vinni Le Pen, sé Evrópusambandið úr sögunni

BBC sagði frá því í kvöld að 60 þingmenn íhaldsmanna hefðu kallað eftir því að Bretar yfirgefi sameiginlegan markað og tollasamband ESB. Aðrir þingmenn eru hins vegar að kalla eftir því að Theresa May, forsætisráðherra, felli niður áfrýjun varðandi dómsúrskurð sem segir til um að þingmenn verði að kjósa um Brexit áður en af verður.

Þingmennirnir 60, Íhaldsflokkurinn er í heildina með 328 þingmenn, segja að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar í júní sýni greinilega að Bretland geti ekki verið utan ESB og í senn hluti af sameiginlega markaðinum eins og Noregur og Ísland. Allt minna en að slíta Bretland frá ESB að fullu væru svik við kjósendur.

Skotar andvígir sambandsslitum

Nicola Sturgeon, forsætisráðherra Skotlands, kallaði í síðasta mánuði eftir því að Skotar myndu áfram vera aðilar sameiginlegum markaði ESB, jafnvel þó að aðrir hlutar Bretlands myndu slíta sig frá sambandinu. Hún sagði þó að hún hefði ekki fengið nein svör.

Sturgeon hefur sagt að hún sé tilbúin til að halda aðra þjóðaratkvæðagreiðslu í Skotlandi um sjálfstæði frá Bretlandi ef Skotar fái ekki að vera áfram innan sameiginlega markaðarins. Yfirvöld í Skotlandi hafa þegar samið frumvarp um nýja atkvæðagreiðslu.

Yfirgnæfandi meirihluti Skota kaus að vera áfram innan ESB í sumar og árið 2014 fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla um sjálfstæði frá Bretlandi. Þá var niðurstaðan sú að 55,3 prósent vildu að Skotland yrði áfram hluti af Bretlandi og 44,7 prósent voru á móti því.


Tengdar fréttir

Lýðskrumsflokkarnir fagna Trump

Evrópskir stjórnmálaflokkar sem hafa varað við innflytjendum og barist gegn alþjóðavæðingu líta á sigur Donalds Trump sem hvatningu til dáða og hlakka til framhaldsins.

Útganga Breta í uppnámi

Stjórn Theresu May hyggst áfrýja dómsúrskurði um að breska þingið þurfi að samþykkja útgöngu úr ESB. Dómstóllinn segir ríkisstjórn enga heimild hafa til að virkja útgönguákvæði ESB, þrátt fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna í s

Breskir þingmenn í bobba

Samkvæmt dómsúrskurði frá því á fimmtudag fer breska þingið eitt með ákvörðunarvald um úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×