Erlent

Leiðtogar ESB-ríkja segja ummæli Erdogan vera óásættanleg

Atli Ísleifsson skrifar
Leiðtogar nokkurra aðildarríkja Evrópusambandsins hafa gagnrýnt tyrknesk stjórnvöld um helgina, eftir að Recip Tayip Erdogan Tyrklandsforseti sakaði Þjóðverja og Hollendinga um nasisma.

Ástæða ummæla Erdogans er sú ákvörðun að banna fjöldamótmæli sem fara áttu fram í löndunum og virðast hafa verið skipulögð af tyrkneskum yfirvöldum.

Hollenski forsætisráðherrann Mark Rutte segir ummælin óásættanleg og Sigmar Gabriel, utanríkisráðherra Þjóðverja, segist hafa vonað að Tyrkir færu að ná áttum.

Þá hefur Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Dana, frestað fyrirhuguðum fundi með Erdogan og segist óttast að lýðræðið standi nú afar höllum fæti í Tyrklandi.

Segir nasismann lifa enn

Erdogan sagði í ræðu í Istanbúl í gær að hann hafi ávallt sagt að hann hafi talið nasismann dauðan en nú sé það breytt. „Ég hafði rangt fyrir mér. Nasismi lifir enn á Vesturlöndum,“ sagði forsetinn.

Erdogan var þar að vísa til þess að tveimur ráðherrum tyrknesku ríkisstjórnarinnar hafi verið meinað að ávarpa tyrkneska innflytjendur í hollensku borginni Rotterdam á laugardag.

Fjölskyldumálaráðherranum Fatma Betul Sayan Kaya var meinað að koma inn í skrifstofu ræðismanns Tyrkja í Rotterdam. Því næst fylgdi hollenska lögreglan honum að landamærunum við Þýskaland.

Þá reyndi utanríkisráðherrann Mevlut Cavosoglu að fljúga til Hollands en var honum meinuð innganga í landið. Cavosoglu fékk hins vegar að fara til frönsku borgarinnar Metz. Þar hélt hann ræðu og sagði Holland höfuðvígi fasismans.

Afstaða til stjórnarskrárbreytingar að breytast

Ráðherrarnir ætluðu að halda ræðu í Hollandi til þess að reyna að afla stuðnings við breytingartillögur á stjórnarskrá Tyrklands sem myndu færa forsetanum aukið vald.

Kosið verður þann 16. apríl og hefur afstaða Tyrkja sveiflast gríðarlega ef marka má kannanir. Þannig styðja 36 prósent tillöguna í könnun AKAM frá 9. mars, 52 prósent í könnun ORC frá 7. mars og 53 prósent í könnun MAK frá því 2. mars.


Tengdar fréttir

Erdogan líkir þýskum stjórnvöldum við nasista

Forseti Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, líkir þýskum stjórnvöldum við nasista eftir að þau bönnuðu fjöldasamkomur Tyrkja í Þýskalandi, sem miðuðu að því að tryggja stuðning Tyrkja í Þýskalandi við stjórnarskrárbreytingar.

Erdogan segir nasisma á lífi í vestrinu

Forseti Tyrklands gagnrýnir hollensk stjórnvöld harðlega. Utanríkisráðherrann kallar ríkið höfuðstað fasismans. Ráðherrar Tyrkja ætluðu að afla stuðnings við stjórnarskrárbreytingar á meðal Tyrkja sem staðsettir eru í Hollandi en




Fleiri fréttir

Sjá meira


×