Bíó og sjónvarp

Leiðir byrjendur í gegnum Game of Thrones

Samúel Karl Ólason skrifar
Söguheimur A Song of Ice and Fire bókanna og Game of Thrones þáttanna, er margslunginn og flókinn. Flestir eiga í vandræðum með að halda áttum í þessu hafi persóna og söguþráða, en Samuel L. Jackson er kominn til bjargar.

HBO, framleiðendur Game of Thrones fengu leikarann til að fara yfir það helsta úr fyrstu fimm þáttaröðunum (ekki þeirri síðustu) og er óhætt að segja að hann geri það á nokkuð einstakan hátt. Jackson þarf að fara yfir mikið efni á einungis tæpum átta mínútum.

Niðurstaðan er: Gjörsamlega frábærar tæpar átta mínútur.


Tengdar fréttir

Svona var bardagi bastarðanna í GoT gerður

Fyrirtækið Iloura sem sér um stafræna útfærslu Game of Thrones þáttanna hefur gert magnað myndband sem sýnir hvernig eitt magnaðsta bardaga atriði þáttanna var gert.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×