Innlent

Leiðinleg færð suðaustanlands - áfram él á suðvesturlandi

Birgir Olgeirsson skrifar
Áfram er von á éljum á höfuðborgarsvæðinu í dag.
Áfram er von á éljum á höfuðborgarsvæðinu í dag. Vísir/Anton
Talsverð úrkoma er í kortunum suðaustanlands, snjókoma til fjalla en slydda á láglendi, jafnvel rigning sums staðar. Inni á vef Veðurstofu Íslands kemur fram að saman veiti þetta á fremur leiðinlega færð, krapa og hálku. Má búast við að það hvessi duglega af suðaustri á austanverðu landinu.

Með suðaustlægri áttinni berst heldur mildara loft inn yfir austanvert landið en verið hefur, og dregur þá víðast hvar úr frosti. Á láglendi suðaustan- og austanlands má búast við allt að fimm stiga hita en áfram frost í fjallahæð. Austan- og norðaustanlands er snjómugga víða og einnig má búast við stöku éljum suðvestanlands, en þar er þó mun hægari vindur.

Á Vestfjörðum og Norðvesturlandi er einna helst þurrt og bjart. Á morgun kólnar aftur og helgin sögð líta ljómandi vel út. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á föstudag:

Suðaustan 8-13 m/s og snjókoma eða slydda suðaustan og austanlands. Austan 5-10 m/s og lítils háttar él annars staðar en bjartviðri um landið suðvestanvert. Frost 2 til 10 stig, en um frostmark suðaustan til.

Á laugardag:

Austan 8-13 m/s. Skýjað austan til og él með ströndinni en bjartviðri vestan til. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum N-lands.

Á sunnudag:

Fremur hæg breytileg átt og víða léttskýjað, en líkur á stöku éljum við suðausturströndina. Talsvert frost um allt land.

Á mánudag:

Suðaustan 8-13 m/s og lítils háttar snjókoma SV-til en ört vaxandi suðaustanátt með talsverðri slyddu og síðar rigningu síðdegis. Hægari og úrkomulítið NA-til. Hlýnandi veður.

Á þriðjudag:

Útlit fyrir suðvestan hvassviðri með rigningu í fyrstu, en síðan slyddu og snjókomu. Áfram úrkomulítið NA-til. Kólnar í veðri.

Á miðvikudag:

Suðvestanátt og él en bjartviðri N- og A-lands. Kalt í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×