Innlent

Leiðin til Bessastaða: Vill sjá Íslendinga taka sameiginlega ábyrgð á landinu sínu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Andri Snær Magnason rithöfundur og forsetaframbjóðandi segir forseta geta tekið þátt í hreyfiafli samfélagsins. Hann bjóði sig fram því hann hafi ákveðna framtíðarsýn en honum þykir Ísland í heild sinni hafa skort framtíðarsýn, ekki síst í kjölfar hrunsins þar sem meira hefur verið um það að horft sé til baka.

Andri Snær er seinasti forsetaframbjóðandinn sem kemur í forsetaviðtal Vísis og Stöðvar 2. Öllum frambjóðendum var boðið að koma í viðtal hjá Gunnari Atla Gunnarssyni fréttamanni og hefur eitt viðtal birst á dag hér á vefnum. Dregið var um röð frambjóðenda til að gæta sanngirni.

Nái Andri Snær kjöri vill hann meðal annars nota embættið til að tengja saman ólíka hópa og fyrirtækið og til þess að skapa vettvang til að setja ákveðin málefni á oddinn líkt og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, gerði með Arctic Circle.

Landsbyggðinni bara boðið upp á að vaxa á forsendum stóriðjunnar

„Ég steig inn í náttúruverndarbaráttuna af miklum krafti og þá voru það náttúrulega byggðamál og mér fannst eins og landsbyggðinni á Íslandi væri bara boðið upp á einn möguleika að vaxa á forsendum stóriðjunnar. Ísafirði var til dæmis ekki boðið upp á neitt vegna þess að þar var engin stóriðja til þess að grípa. Ég væri til í að sjá Íslendinga til í að taka sameiginlega ábyrgð á landinu sínu og horfa sameiginlega á hvernig við getum þróast og ég sé fyrir mér skýr verkefni sem forseti getur sett á fót,“ segir Andri og nefnir sem dæmi verkefni sem stuðlar að því að bæta læsi drengja.

Honum finnst að forsetinn eigi að hafa skýra sýn en þykir verra ef hann beiti sér beint inn í pólitísk hitamál.

„Forsetinn á að hafa skýra sýn. Mér þykir verra ef hann beitir sér beint inn í pólitísk hitamál. Hann á að hafa stærri sýn, hann á að horfa lengra og víðar heldur en kannski alþingismenn eða kjördæmi eða sveitarstjórnir horfa. Forsetinn á að hafa einhver mál á oddinum en hann á helst ekki að hygla einum hópi frekar en öðrum.“

Stjórnarskráin veik fyrir einræðistilburðum

Þá þykir Andra einnig nauðsynlegt að breyta stjórnarskránni og sérstaklega telur hann brýnt að endurskoða hlutverk forseta.

„Stjórnarskráin er veik fyrir einræðistilburðum jafnvel. Forseti getur beitt stjórnarskránni mjög harkalega. Það er umdeilanlegt hvað forseti á að gera og umdeildur maður gæti beitt henni að vild. Þess vegna myndi ég segja að þetta [að breyta stjórnarskránni] væri líka tækifæri til að skína út í heim,“ segir Andri Snær.

Viðtalið við Andra Snæ má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×